Viðburðarík helgi framundan – Tíu góðar ábendingar

Fréttir

Viðburðum rignir yfir okkur Hafnfirðinga um helgina. Við getum sett upp frábæra dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Notið samverunnar. Já, hér í Hafnarfirði hittir þú hamingjuna. Hér færðu tíu góð ráð sem fullkomna helgina.

Helgin verður ógleymanleg í Hafnarfirði

Ertu að pakka útilegudótinu í bílinn – Drífðu það bara aftur í skúrinn, því það er troðfull dagskrá um helgina hér í Hafnarfirði. Hér höfum við tíu góðar tillögur sem gera lífið betra með ógleymanlegri helgi.

  1. Bæjarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar er hafin. Opnunarhelgin er stór. Partíbingó á föstudeginum og Bylgjulestin í beinni útsendingu frá hátíðarsvæinu frá 12-16 á laugardag. Þá stýrir Eva Ruza stjörnu-pöbbkvissi kl. 17.15 á laugardeginum. Kristmundur Axel og Úlfur Úlfur verða í Bylgjutjaldinu frá 19.45
  2. Hafnarborg með frábæra innkomu. Já, fjölskyldutónleikar í dag, föstudag kl. 17, á Sönghátíðinni í Hafnarborg. Svo má njóta sýninganna Stór heimur og May Show Signs of Minor Defects án endurgjaldis í þessu frábæra safni okkar.
  3. Prófaðu nýja pallinn á A. Hansen. Já, gullfallegt útisvæði hefur verið sett upp við þetta fornfræga veitingahús. Þar eru hitarar ef sólin situr falin bakvið ský og því hægt að njóta góða hafnfirska loftsins úti hvernig sem viðrar.
  4. Handbolti í Pakkhúsinu okkar. Öllu jöfnu eru þrjár sýningar í Pakkhúsinu, Byggðasafninu sem er opið alla daga. Nú hefur verið sett upp sýning um handboltasögu okkar Hafnfirðinga, Handboldabærinn Hafnarfjörður. Það er virkilega gaman að staldra þar við og njóta.
  5. Skottmarkaður verður á bílastæði Hafnarfjarðarkirkju á morgun laugardag milli 13-17. Yfir fjörutíu hafa bókað stæði. Þar verður því líf og fjör.
  6. Jóga nídra í Hellisgerði. Gefðu þér stund til að hægja á, anda og tengjast sjálfu þér í hjarta Hafnarfjarðar. Viðburðurinn er í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð. Kristjana Jokumsen stýrir dásamlegri stund þar sem töfrar Hellisgerðis og djúpslökun Jóga Nidra renna saman í eitt á morgun laugardag milli kl. 2-3.
  7. Sund í Suðurbæjarlaug. Sveppurinn fer í gang og fjölskyldan fagnar. Þessi sundperla er opin til kl. 18 á laugardögum og 21 á sunnudögum.
  8. Blús við höfnina í Ægi 220. Já, það verður blúsveisla á Ægi 220 á morgun laugardag frá kl. 15 til styrktar Píeta samtökunum. Miðasala er á midi.is.
  9. Verslaðu í Firði! Hvað er skemmtilegra en að versla gæðavörur á góðum afslætti. Útsölurnar eru farnar að láta á sér kræla!
  10. Ratleikur Hafnarfjarðar. Leikurinn stendur nú sem hæst. 27 merki eru nú vítt og reitt um uppland Hafnarfjarðar og frí ratleikjakort má til að mynda nálgast í sundlaugunum, Fjarðarkaupum og verslunarmiðstöðinni Firði. Það eru verðlaun í boði!

Já, helgin verður stórkostleg í firðinum okkar.

Ábendingagátt