Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 – Hamarinn og Ástjörn okkar svæði
Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli verða svæðin sem vert er að safnast saman á þegar almyrkvi verður á sólu þann 12. ágúst næstkomandi. Hafnarfjarðarbær gefur öllum börnum sínum 17 ára og yngri sólmyrkvagleraugu. Þau má nálgast á söfnum bæjarins og í þjónustuverinu.
Almyrkvinn yndislegur í Hafnarfirði
Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur á Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst. Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1433 sem hægt að upplifa almyrkvann hér á höfuðborgarsvæðinu. Þar áður var hann árið 1330!
Hafnfirsk börn, 17 ára og yngri, fá sólmyrkvagleraugu á Byggðasafninu, Hafnarborg og í þjónustuveri bæjarins að Strandgötu 8-10.
Hægt verður að upplifa almyrkvann í allt að 68 sekúndur hér í Hafnarfirði. Við veðjum á Hamarinn og Ástjörn sem staðina sem best er að safnast saman á.
Við bendum einnig á að söngkonan Björk verður á Víðistaðatúni með hátíðina Echolalia ásamt Smekkleysu. Þar verða ríflega sex þúsund manns saman komin.
Vertu viðbúin og njóttu frá upphafi
| Staðsetning | Lengd almyrkva | Deildarmyrkvi hefst | Almyrkvi hefst | Hámark | Almyrkva lýkur | Deildarmyrkva lýkur |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hafnarfjörður – Norðurbær / Holt | 1 mín. 5 sek. | 16:47:20 | 17:48:22 | 17:48:55 | 17:49:27 | 18:47:46 |
| Hafnarfjörður – Miðbær | 1 mín. 6 sek. | 16:47:20 | 17:48:22 | 17:48:55 | 17:49:28 | 18:47:47 |
| Hafnarfjörður – Vellir | 1 mín. 8 sek. | 16:47:21 | 17:48:22 | 17:48:56 | 17:49:30 | 18:47:48 |
Almykvinn er einstakur viðburður, því næsti er 26. maí árið 2245! Sá mun vara í 47 sekúndur, eða styttri en þessi sem nú verður.