Heimgreiðslur – endurnýjun umsókna fyrir 19. ágúst

Fréttir

Hafnarfjarðarbær greiðir mánaðarlega í ellefu mánuði á ári heimgreiðslur til foreldra og forráðamanna barna sem ekki eru í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 12 mánaða aldri og þar til barn verður 30 mánaða. Greiðslur falla niður ef barn hefur nám í leikskóla eða fer til dagforeldris fyrir þann tíma. Reglurm samkvæmt er ekki greitt fyrir júlí og endurnýja þarf umsókn um heimgreiðslu fyrir 19. ágúst ár hvert.

Hafnarfjarðarbær greiðir mánaðarlega í ellefu mánuði á ári heimgreiðslur til foreldra og forráðamanna barna sem ekki eru í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 12 mánaða aldri og þar til barn verður 30 mánaða. Greiðslur falla niður ef barn hefur nám í leikskóla eða fer til dagforeldris fyrir þann tíma. Ekki er greitt fyrir júlí. Mánaðarleg greiðsla miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir 8 klst. vistun. Endurnýja þarf umsókn um heimgreiðslu fyrir 19. ágúst ár hvert.

Sótt er um í gegnum Mínar síður

Til að umsókn taki gildi fyrir komandi greiðslumánuð þarf hún að berast í síðasta lagi 19. ágúst. Umsóknir sem berast eftir 19. ágúst taka gildi frá næsta mánuði og heimgreiðslur eru ekki afturvirkar.
Heimgreiðslur eru greiddar í ellefu mánuði á ári og eru ekki greiddar fyrir júlí.

Nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknarferlið

Ábendingagátt