50 keppa í súluspretti á Hafnarfjarðarhöfn

Fréttir

Fimmtíu keppa í súluspretti á Hafnarfjarðarhöfn á laugardag. Keppnin er haldinn er um allan heim af Red Bull og í fyrsta skipti hér á landi.

Súlusprettur í fyrsta sinn á Íslandi

Fimmtíu keppa í súluspretti í Hafnarfjarðarhöfn á laugardag. Keppnin er haldin um allan heim af Red Bull og í fyrsta skipti hér á landi. Hún hefst kl. 14.

Súlan er 12 metrar og sleip. Hún verður boltuð niður og stendur út yfir sjó, áþekkt því sem þekkt er í koddaslag á Sjómannadegi.

Inga María Hjartardóttir, vörumerkjastjóri Red Bull á Íslandi, segir nærri 150 á biðlista í von um að taka þátt. 18 ára aldurstakmark sé til þátttökunnar. „En öllum velkomið að fylgjast með,“ segir hún. „Stuðið endar svo í tónlistarveislu á Ægi 220 klukkan 16. Þar koma Diljá Péturs, Issi og Eyþór Wöhler fram.“

Björgunarsveitin verður á staðnum til öryggis og heitt kar til að hita keppendurna aftur upp eftir fallið.

„Það er draumur að halda viðburðinn í Hafnarfirði. Við sem vinnum í þessu búum öll í Hafnarfiðri. Stutt heim,“ segir Inga hressilega, spennt fyrir laugardeginum. Körfubíll verður á staðnum til að bæta feiti við til að jafna leika á milli keppenda.

Keppnin er haldin á Hafnarfjarðarhöfn.

Ábendingagátt