Ljós, skuggar og sköpunarkraftur barna

Fréttir

Theodoros Achilleas Proikas (Theo) hefur í eitt ár starfað sem skóla- og frístundaliði í Hvaleyrarskóla. Verkefni hans Að færa ljós í myrkrið er skuggaleikhúsverkefni þar sem börn vinna með tilfinningar, sköpunargáfu og samvinnu í gegnum ljós og skugga. 

Nemendur noti sköpunargáfuna og ímyndunaraflið

Theodoros Achilleas Proikas (Theo) hefur í eitt ár starfað sem skóla- og frístundaliði í Hvaleyrarskóla. Hann kemur frá Grikklandi og hefur reynslu þaðan af því að búa til leikbrúður. Verkefnið hans Að færa ljós í myrkrið fékk styrk úr Menntasjóði í vor. Verkefni Theo er skuggaleikhúsverkefni þar sem börn vinna með tilfinningar, sköpunargáfu og samvinnu í gegnum ljós og skugga. Með því að nota hendur, fígúrur, og líkamshreyfingar, skapa börn og kynna sínar eigin skuggasýningar, sem færir hlýju og ímyndunarafl inn í vetrarmyrkrið.

„Þau koma til mín í frístund eða eftir skóla og það er þeirra val að taka þátt í þessu. Þá hafa þau nægan tíma og svigrúm til þess undir leiðsögn minni,“ segir Theo og er augljóslega spenntur fyrir því að þróa verkefnið næsta haust. Hann viðurkennir að veðurfar og birtuskilyrði séu töluvert ólík hér á landi en á Grikklandi, en hann hefur mikla ánægju af því að starfa með börnum og hefur langa reynslu af því í heimalandinu, aðallega í leikskóla og börnum með sérþarfir í grunnskóla.

Hvaleyrarskóli góður vinnustaður

„Verkefnið er aðallega til þess að þau noti sköpunargáfuna og ímyndunaraflið og njóti þess að gera þetta og finni styrkleika sína. Ég hef í vetur gert tilraunir með þetta til dæmis með dreng í námsverinu og þar fann hann styrk sinn í þessu því hann hefur átt erfitt með bóknám,“ segir Theo sem hefur ýmsum öðrum skyldum að gegna í Hvaleyrarskóla. Hann mun finna út samhliða þeim hlutverkum hversu margar klukkustundir á viku munu fara í þetta næsta vetur. 

Theo líkar annars mjög vel hér á landi og segir Hvaleyrarskóla vera mjög góðan vinnustað. Hann hóf störf þar aðeins þremur vikum eftir að hann kom til Íslands og segist munu nýta sumarið vel í að ná áttum, læra enn meiri íslensku og skoða landið. 

Síðustu vikur og á næstu vikum munu viðtöl við styrkhafa úr Menntasjóði Hafnarfjarðar vera birt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar. Þannig gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fá dýpri innsýn í frábær verkefni og skapandi skóla- og frístundastarf.

Ábendingagátt