Frístundamessa – svo börnin finni þá einu réttu
Fjórtán hafnfirsk félög hafa skráð sig til leiks svo börnin okkar finni þá frístund sem hentar þeim best. Frístundamessa verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst milli kl. 10-14.
Öll börn eiga skilið að finna sína frístund
Frístundamessa verður haldin hér í Hafnarfirði í íþróttahúsinu við Strandgötu 29. ágúst. Þetta er fullkomið tækifæri til kynna fjölbreytt íþrótta- og tómstundafélög bæjarins fyrir börnunum okkar. Allt á einum stað. Já, finna þá frístund sem hentar hverju barni best.
15 félög í Hafnarfirði hafa þegar skráð sig til leiks. Mörg þeirra kynna margar greinar. Hægt er að skemmta sér við að prufa á staðnum.
Hvaða félög verða?
| Félög og starfsemi | |
|---|---|
| Badmintonfélag Hafnarfjarðar | Karatedeild Hauka |
| BFH | Listdansskóli Hafnarfjarðar |
| Blakfélag Hafnarfjarðar | Siglingarklúbburinn Þytur |
| Bogfimifélagið Hrói Höttur | Skátafélagið Hraunbúar |
| FH | Skautafélag Hafnarfjarðar |
| Fimleikafélagið Björk | Sundfélag Hafnarfjarðar |
| Haukar | Tónlistarskóli Hafnarfjarðar |
| Hestamannafélagið Sörli | Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar |
Börnin blómstri á eigin forsendum
Frístundamessan er liður í þeirri stefnu Hafnarfjarðarbæjar að styðja við heilsu, virkni og vellíðan barna og ungmenna. Sem heilsubær leggur Hafnarfjörður áherslu á að öll börn fái tækifæri til að hreyfa sig, mynda félagsleg tengsl og blómstra á eigin forsendum.
„Markmiðið er ekki að öll börn stundi sömu íþróttina eða verði afreksfólk. Það mikilvægasta er að hvert barn finni frístund sem vekur áhuga, eykur sjálfstraust og verður hluti af góðri daglegri rútínu,“ segir Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Hún segir þátttöku í frístundastarfi hafa áhrif langt umfram sjálfa æfinguna eða tómstundina.
Fjölbreytt framboð í boði
„Frístundir snúast ekki aðeins um hreyfingu. Þar eignast börn vini, læra samvinnu, takast á við áskoranir og upplifa gleðina sem fylgir því að tilheyra hópi. Þessi reynsla styrkir bæði líkamlega og andlega heilsu þeirra.“ Í Hafnarfirði er fjölbreytt framboð í boði og því ættu flest börn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Öll börn eru ólík. Sum finna sig í liðsíþróttum, önnur í einstaklingsíþróttum eða skapandi tómstundum. Það skiptir máli að gefa þeim tækifæri til að prófa sig áfram og finna það sem hentar þeim best.“
Til að auðvelda þátttöku veitir Hafnarfjarðarbær öllum börnum á aldrinum 3–18 ára frístundastyrk sem ætlað er að draga úr fjárhagslegum hindrunum og tryggja að sem flest börn geti tekið þátt.
„Við viljum að efnahagur sé sem minnst hindrun þegar kemur að þátttöku barna í frístundum. Frístundastyrkurinn er mikilvægur þáttur í því að skapa jöfn tækifæri og hvetja fjölskyldur til þátttöku.“
Rúmlega 4000 börn og ungmenni nýta frístundastyrkinn árlega sem er um 66%. Það er vilji fyrir því að sjá þessa tölu hækka.
Frístundamessa fyrir fjölskylduna alla
Á Frístundamessunni kynna íþrótta- og tómstundafélög starfsemi sína, bjóða upp á kynningar og svara spurningum barna og foreldra.
Brúarsmiðir verða jafnframt á staðnum til að aðstoða fjölskyldur af ólíkum tungumála- og menningarbakgrunni.
Tinna hvetur allar fjölskyldur til að nýta tækifærið og mæta á messuna. „Frístundamessan er frábær leið til að sjá allt það fjölbreytta starf sem í boði er í Hafnarfirði. Von okkar er að hvert barn fari heim með tilhlökkun fyrir nýjum tækifærum – og finni sinn stað þar sem það getur vaxið, notið sín og blómstrað.“