Helgin heillandi í Hafnarfirði – Sjáðu dagskrána
Álfahátíð í Hellisgerði, listamannaspjall og sýningarstjóraspjall í Hafnarborg. Svo eru söfnin opin um helgina. Já, það er frábær helgi í pípunum. Njótum hennar saman.
Verjum helginni saman í Hafnarfirði
Það verður sannkölluð ævintýra- og menningarstemning í Hafnarfirði um helgina. Álfar taka yfir Hellisgerði, listamenn og sýningarstjórar taka á móti gestum í Hafnarborg, ný sýning er í Litla Gallerý og söfn bæjarins bjóða gesti velkomna. Tilvalið er að taka daginn snemma, rölta um miðbæinn og njóta þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða.
Álfarnir taka yfir Hellisgerði
Stærsti fjölskylduviðburður helgarinnar er án efa Álfahátíðin í Hellisgerði sunnudaginn 16. ágúst frá kl. 13–16. Þá fyllist einn fallegasti garður bæjarins af álfum, tónlist, leikjum og ævintýrum fyrir börn og börn í anda.
Á sviðinu koma meðal annars fram:
- Íþróttaálfurinn og Solla
- Þorri og Þura,
- dansálfar Listdansskóla Hafnarfjarðar
- Benedikt búálfur.
- og sjálfur Páll Óskar.
Um allan garð verður líf og fjör með andlitsmálningu, sirkussmiðju, sápukúlum, sykurpúðum og útileikjum.
Listamanna- og sýningarstjóraspjall í Hafnarborg
Um helgina er jafnframt síðasta tækifærið til að sjá tvær sumarsýningar Hafnarborgar. Við fáum einstaka innsýn inn í sýningarnar með listamannaspjalli og sýningarstjóraspjalli.
- Laugardaginn 15. ágúst kl. 14 tekur myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson á móti gestum og ræðir um einkasýningu sína Stóran heim. Þar mætast draumkenndur veruleiki og vangaveltur um tilveru mannsins og samband hans við náttúruna. Sýningunni lýkur sunnudaginn 16. ágúst.
- Sunnudaginn 16. ágúst kl. 14 tekur Daría Sól Andrews sýningarstjóri síðan á móti gestum og veitir innsýn í sýningu Sveins Fannars Jóhannssonar, May Show Signs of Minor Defects. Í verkum sínum vinnur Sveinn meðal annars með fundnar ljósmyndir og efni sem hefur færst úr upprunalegu samhengi sínu. Sýningunni lýkur einnig á sunnudag.
Hafnarborg er opin frá kl. 12–17 og ókeypis er inn á safnið og bæði spjöllin.
Hljóð í Litla Gallerý
Listunnendur geta líka lagt leið sína í Litla Gallerý um helgina. Þar stendur yfir sýningin Hljóð // Markús Bjarnason / Stúdíó Suð frá föstudeginum 14. ágúst til sunnudagsins 16. ágúst.
Sýningin fjallar um hljóð í ólíkum birtingarmyndum; hljóð sem verður til og hljóð sem hverfur. Þar mætast meðal annars hljóðdempandi málverk og ólíkar hugmyndir um hljóð og þögn. Sýningin opnar kl. 18 á föstudag og stendur til kl. 18 á sunnudag.
Handboltabærinn og saga Hafnarfjarðar
Það er líka tilvalið að nýta helgina til að kíkja á Byggðasafn Hafnarfjarðar. Í Pakkhúsinu á Vesturgötu 6 má meðal annars sjá sýninguna Handboltabærinn Hafnarfjörður, þar sem saga handboltans í bænum er rakin allt frá fyrstu árum íþróttarinnar og fram til dagsins í dag.
Fleiri sýningar Byggðasafnsins er að finna víða um bæinn, meðal annars í Sívertsens-húsi og Beggubúð auk útisýninga, og einmitt ein þeirra í Hellisgerði sem hægt er að njóta á Álfahátíðinni.
Höfum líka í huga að það er opið í Siggubæ um helgar.
Gerum okkur glaðan dag í Hafnarfirði
Já, Hafnarfjörður er málið þessa helgi sem aðrar. Hægt er að byrja á list og sögu, rölta um miðbæinn, kíkja á sýningar, njóta ævintýraheims álfanna í Hellisgerði. Enda svo daginn á góðu kaffihúsi eða matsölustað hér í bæ
Sjáðu alla viðburði í Hafnarfirði og það sem er fram undan á viðburðasíðu bæjarins.