Skapandi sumarstörf – Smári / Skáldsaga og ritlistarnámskeið
Smári Hannesson, útgefandi og rithöfundur, vinnur á vegum Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að skáldsögu í fullri lengd og ritlistarnámskeiði fyrir börn.
„Verkefnið mitt í Skapandi sumarstörfum er tvíþætt og mjög ritlistarmiðað. Annars vegar held ég ritlistarnámskeið fyrir börn og hinsvegar vinn ég að skáldsögu í fullri lengd.“
Rándýr ritsmiðja
„Markmiðið með ritlistarnámskeiðinu var að efla nemendur í sínum skrifum og auðga fjölbreytnina í námskeiðum fyrir börn yfir sumartímann, og það má segja að hvort tveggja hafi gengið mætavel. Í Rándýrum ritsmiðjum (Frítt inn), sem fóru fram dagana 7. til 9. júlí skoðuðum við hvernig byggja megi upp sögu, aðferðir við skrif, persónusköpun, ritlistaræfingar og fleira. Áhersla var lögð á að í skapandi skrifum, sem og öðru, skapi æfingin meistarann. Það var virkilega mikil ánægja með námskeiðið og hugmyndin um að endurtaka það að ári gæti vel orðið að veruleika.“
Ástríðuverkefni sem verður að skáldsögu í fullri lengd
„Svo er það skáldsagan. Ég hef unnið að því ástríðuverkefni síðastliðin tvö ár og stefni á að setja punkt við fyrstu drög í lok sumars. Spennusagan Eldar ber nafn með rentu en í henni brenna mikilvæg hús til grunna, eldar geisa í lífi aðalpersónunnar, og að sjálfsögðu bera tvær persónur nafnið Eldar. Það mætti kannski segja að ég brenni fyrir þessari skáldsögu.“
Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa
Smári sýndi afrakstur sumarsins, las vel valda kafla úr skáldsögunni og sagði frá námskeiði sumarsins á uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa þann 6. ágúst síðastliðinn, við frábærar viðtökur.
Við hvetjum alla áhugasama eindregið til að fylgjast með framhaldinu hjá þessum skapandi og hæfileikaríka rithöfundi á Instagram.
UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026
Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.
Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.



