Þéttsetið í Hellisgerði á hátíð álfanna
Páll Óskar mætti á Álfahátíðina í Hellisgerði ásamt að minnsta kosti á annað þúsund gesta. Já, garðurinn var fullur af lífi og álfum á þessari gullfallegu fjölskylduhátíð.
Álfahátíð í Hellisgerði 2026
Sannkölluð ævintýrastemning var í Hellisgerði á sunnudag þegar álfahátíðin var haldin í blíðskaparveðri. Garðurinn fylltist af fólki og er áætlað að á annað þúsund gestir hafi lagt leið sína í Hellisgerði þegar mest lét.
Álfar, tónlist, sirkus og leikur tóku yfir garðinn frá kl. 13–16. Íþróttaálfurinn og Solla slógu tóninn, Þorri og Þura mættu til leiks og Benedikt búálfur lét sig að sjálfsögðu ekki vanta. Dansálfar frá Listdansskóla Hafnarfjarðar voru á vappi og víða um garðinn mátti finna afþreyingu fyrir börnin; sirkussmiðju Sirkús Ananas, Húlladúlluna, andlitsmálningu, sápukúlur, sykurpúða og útileiki.
Páll Óskar steig á stokk
Einn af hápunktum dagsins var þegar Páll Óskar steig á svið Álfahátíðarinnar. Stemningin lét ekki á sér standa og ungir sem aldnir tóku vel undir. Hellisgerði var þá þéttsetið og gestir dreifðust um allan garðinn.
Álfar og huldufólk hafa lengi verið órjúfanlegur hluti af sögu og ímynd Hafnarfjarðar og Hellisgerði skipar þar sérstakan sess enda talið að þar sé þétt byggð álfa. Hátíðin í ár var sú fyrsta eftir að Helliskaffi tók til starfa í Oddrúnarbæ í hjarta Hellisgerðis.
Með tilkomu Helliskaffis hefur nýtt líf færst í Hellisgerði. Markmiðið er að garðurinn verði enn frekar lifandi samkomustaður Hafnfirðinga.
Takk fyrir frábæran dag
Já, troðfullur garður, fjölbreytt dagskrá og gleði hvert sem litið var. Hafnarfjarðarbær þakkar öllum sem komu, skemmtu, tóku þátt og lögðu sitt af mörkum við að gera Álfahátíðina í Hellisgerði að ævintýralegum degi í Hafnarfirði.
Sjáumst meðal álfanna!