Hljóðfæri, skátar, Gafló og Sambo  – Frístundamessa

Fréttir

Tónlistarskóinn, Skátafélagið, Gaflóskólinn og sjálfsvarnarfélagið Sambo verða á Frístundamessunni. Frístundamessan verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14.

Finndu réttu frístundina á Frístundamessunni

Já, hvað vilja börnin okkar? Oft þarf að leita lengi eftir bestu frístundina – þeirri sem sem hentar þeim. Nú fá þau tækifæri til að kynnast mörgum þeirra á einu bretti.

Markmiðið með fyrstu Frístundamessunni í Hafnarfirði er að stytta þeim leið. Frístundamessan verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14.

Fimmtán félög kynna starfsemi sína. Oft þarf ekki mikinn búnað til að geta tekið þátt. Við kynnumst fjórum þeirra í dag.

  • Gaflóskólinn Í Gaflóskólanum fá börn og ungmenni að kynnast leiklist og spuna í skapandi og skemmtilegu umhverfi. Áhersla er lögð á gleði og þjálfun í grunntækni leiklistar fremur en lokaútkomuna. Um 120 nemendur stunda nám við skólann. Skráning fer fram á gaflaraleikhusid.is og eini nauðsynlegi búnaðurinn er góða skapið.
  • Tónlistarskóli Hafnarfjarðar Tónlistarskóli Hafnarfjarðar býður upp á fjölbreytt tónlistarnám fyrir um 600 nemendur. Hægt er að læra á fjölmörg hljóðfæri, stunda hefðbundið eða rytmískt tónlistarnám og taka þátt í öflugu hljómsveitastarfi. Nemendur geta leigt flest hljóðfæri hjá skólanum, með ákveðnum undantekningum. Upplýsingar um nám og umsóknir eru á tonhaf.is og í síma 555 2704.
  • Sambo 80 Sambo er sjálfsvarnar- og glímuíþrótt fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Á æfingum er lögð áhersla á aga, styrk, úthald, liðleika og samhæfingu undir leiðsögn þjálfara með mikla reynslu og alþjóðleg réttindi. Um 45 iðkendur æfa hjá Sambo 80. Hægt er að bóka prufutíma með tölvupósti á helga@1312.is. Til að byrja nægja íþróttabuxur og stuttermabolur.
  • Skátafélagið Hraunbúar Skátastarf er ævintýralegt og fjölbreytt starf sem er opið öllum. Börn og ungmenni læra af reynslunni, vinna saman og takast á við spennandi verkefni úti í náttúrunni. Þannig eflast meðal annars sjálfstraust, sjálfstæði, ábyrgð og leiðtogafærni. Um 190 iðkendur eru hjá Hraunbúum. Skráning fer fram í Abler og ekki er þörf á sérstökum búnaði til að byrja, aðeins hlýjum fötum sem henta veðri.

Já, finndu þinn stað í Frístundamessu á laugardaginn!

Ábendingagátt