spássían – listamanna- og sýningarstjóraspjall
Laugardaginn 29. ágúst kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á listamanna- og sýningarstjóraspjall með Gabi Schillig og Hildi Elísu Jónsdóttur, sem…
Sunnudaginn 13. september kl. 14 mun Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, leiða gesti um sýninguna Bjarmaband, sem stendur nú yfir í Hafnarborg, og ræða verk Frosta Fjalars í samhengi við sérstakan feril listamannsins og stöðu hans í íslenskri myndlist.
Á sýningunni getur að líta úrval verka eftir Frosta, sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi. Frosti, sem áður hét Jakob Jónsson, átti að baki langan feril sem spannaði meira en hálfa öld. Eftir virkt sýningartímabil á áttunda og níunda áratug síðustu aldar dró hann sig hins vegar í hlé og tók hvorki þátt í sýningum né var virkur á opinberum vettvangi eða innan myndlistarsamfélagsins. Á löngum ferli mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri tilfinningu fyrir litum.
Sýningarstjóri er Ásdís Spanó.
Frosti Fjalar (1936-2026) nam myndlist í Kaupmannahöfn, fyrst við Ny Carlsberg Glyptotek og síðar við Det Kongelige Danske Kunstakademi, auk þess sem hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Eftir síðustu sýningu sína árið 1991 hvarf hann af sjónarsviðinu en hélt áfram að skapa af einstakri einurð. Eftir hann liggja hátt í sex þúsund vatnslitaverk og um átta hundruð málverk.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.