Helgin – Ævintýraheimar, söngpartý og 100 ára afmæli St. Jó
Fjölbreytt og skemmtileg helgi er fram undan í Hafnarfirði dagana 4.–6. september. Heimar og himingeimar leggja undir sig nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar, sungið verður undir berum himni í Hellisgerði, St. Jósefsspítali fagnar 100 ára afmæli og tónlistin ómar í Bæjarbíói.
Heimar og himingeimar alla helgina
Helgin er viðburðarík í Hafnarfirði. Stærsti viðburðurinn er án efa búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar sem fer fram í nýju húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar í Firði frá föstudegi til sunnudags.
Þar mætast búningaáhugafólk, listafólk, leikjaunnendur og fjölskyldur í heilli helgi af sköpun, keppnum, smiðjum, kynningum og leik. Öll eru velkomin – í búningi eða án hans – því mikilvægustu skilaboð hátíðarinnar eru að vera maður sjálfur, leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín og muna að við verðum aldrei of gömal til að leika okkur.
- Á hátíðinni verður keppt eðal annars í cosplay í ungliðaflokki, almennum cosplayflokki og handverksflokki. Sigurvegari handverksflokksins fær rétt til að keppa fyrir Íslands hönd á Nordic Cosplay Championship í Svíþjóð.
Hátíðin hefur vaxið hratt en gestakomur voru um 10 þúsund árið 2025 og um fimm þúsund fyrsta árið.
Sungið saman í Hellisgerði
Hamingjudagar standa yfir í Hafnarfirði og á föstudagskvöld verður sannkallað HamingjuSöngpartý með Guðrúnu Árný í Hellisgerði.
Guðrún Árný leiðir gesti í söng undir berum himni í einstöku umhverfi garðsins. Söngpartýið hefst kl. 20 og eru öll hvött til að mæta, taka undir og hefja helgina með söng og gleði.
St. Jó fagnar 100 ára afmæli
Laugardaginn 5. september verður opið hús í Lífsgæðasetrinu í St. Jó frá kl. 13–15 í tilefni af 100 ára afmæli St. Jósefsspítala.
Boðið verður upp á sögugöngu um húsið þar sem saga spítalans, starfsemin og fólkið sem þar starfaði verða rifjuð upp. Á göngum hússins verða ljósmyndir og frásagnir úr sögunni auk myndasýninga á annarri og þriðju hæð. Þá verður afhjúpaður nafnalisti þeirra systra sem störfuðu á St. Jósefsspítala.
Tvö ólík tónleikakvöld í Bæjarbíói
Viltu syngja meira. Föstudaginn 4. september kl. 20 heldur Stebbi JAK útgáfutónleika í Bæjarbíói vegna nýrrar sólóplötu sinnar, Líttu í kringum þig. Platan verður flutt í heild sinni fyrir hlé en eftir hlé verða flutt lög af fjölbreyttum ferli Stebba.
Laugardaginn 5. september kl. 20 stígur þungarokkssveitin UNE MISÈRE í fyrsta sinn á svið Bæjarbíós. Sveitin er þekkt fyrir kraftmikla sviðsframkomu og einstaka blöndu harðkjarna og þungarokks og hefur komið fram á stórum tónlistarhátíðum víða um heim.
Myndlist og menningarsaga
Tvær nýjar sýningar standa nú yfir í Hafnarborg.
- Á haustsýningunni spássían vinna sex listamenn með sýningarrýmið sjálft sem viðfangsefni, bæði sem raunverulegt rými og hugmynd.
- Einnig stendur yfir einkasýning Frosta Fjalars, Bjarmaband. Báðar sýningarnar standa til 1. nóvember.
Byggðasafn Hafnarfjarðar er opið laugardag og sunnudag kl. 11–17 og er aðgangur ókeypis. Í Pakkhúsinu má meðal annars skoða sýninguna Handboltabærinn Hafnarfjörður, þar sem saga handknattleiks í bænum er rakin frá árinu 1925 til dagsins í dag. Þar eru einnig fastasýningin Þannig var… og leikfangasýning fyrir börn og fullorðna.
Að vera í Litla Gallerýi
Einkasýning Guðnýjar Magnúsdóttur, Að vera, stendur yfir í Litla Gallerýi við Strandgötu. Í verkunum kannar Guðný líkamann sem lifandi skrá minninga, upplifana og umbreytinga og veltir fyrir sér sambandi líkama, sálar og innri visku.
Opið er:
- föstudaginn 4. september kl. 14–18
- laugardag og sunnudag kl. 13–17
Helgin í hnotskurn
Föstudagur 4. september
- Heimar og himingeimar í Bókasafni Hafnarfjarðar
- Að vera í Litla Gallerýi kl. 14–18
- Stebbi JAK í Bæjarbíói kl. 20
- HamingjuSöngpartý í Hellisgerði kl. 20
Laugardagur 5. september
- Heimar og himingeimar í Bókasafni Hafnarfjarðar
- Byggðasafn Hafnarfjarðar kl. 11–17
- 100 ára afmæli St. Jó kl. 13–15
- Að vera í Litla Gallerýi kl. 13–17
- UNE MISÈRE í Bæjarbíói kl. 20
Sunnudagur 6. september
- Heimar og himingeimar í Bókasafni Hafnarfjarðar
- Byggðasafn Hafnarfjarðar kl. 11–17
- Að vera í Litla Gallerýi kl. 13–17
- Sýningarnar spássían og Bjarmaband í Hafnarborg
Já, það er stuð að búa í Hafnarfirði!