Frístundastyrkurinn – svona virkar hann

Fréttir

Frístundastyrkur Hafnarfjarðarbæjar hefur breyst. Styrkurinn er nú árlegur í stað þess að skiptast niður á mánuði. Það gefur fjölskyldum meira svigrúm til að ákveða hvenær innan ársins þær nýta hann.

Frístundastyrkur með hafnfirskum börnum

Öll hafnfirsk börn á aldrinum 3–18 ára eiga rétt á frístundastyrk. Börn 6–18 ára fá 65.000 krónur á ári og börn 3–5 ára fá 32.500 krónur á ári.

Fyrirkomulagi styrksins var breytt í upphafi árs hafnfirskum fjölskyldum til hagsbóta. Stærsta breytingin er einföld: Frístundastyrkurinn er nú árlegur í stað mánaðarlegs styrks.

Fjölskyldur geta því ráðið hvenær innan ársins þær nýta styrkinn og þurfa ekki lengur að nýta hann frá mánuði til mánaðar til að nýta alla upphæðina.

Höfum í huga að árið 2026 er breytingaár sem valdið hefur ruglingi. Það er eðlilegt því nú gerum við gamla kerfið upp, en í því var hægt að ráðstafa frístundastyrknum fram í tímann. Tökum dæmi:

Dæmi 1

Foreldri skráði barn sitt í fótbolta hjá Haukum í september 2025. Námskeiðið var í tólf mánuði, frá september 2025 til ágúst 2026. Frístundastyrknum var ráðstafað í fótboltann þegar barnið var skráð. Hafnarfjarðarbær skuldbatt sig þar með til að greiða 4.750 krónur á mánuði með barninu út námskeiðið til íþróttafélagsins.

Átta mánuðir námskeiðsins féllu á árið 2026, frá janúar til ágúst. Frístundastyrkur að upphæð 38.000 krónur hafði því þegar verið ráðstafað vegna ársins 2026. Frístundastyrkur barnsins fyrir árið 2026 er 65.000 krónur.

65.000 kr. – 38.000 kr. = 27.000 kr.

Barnið á því 27.000 krónur eftir í frístundastyrk til áramóta 2026.

Mikilvægt: Barnið hefur ekki misst 38.000 krónur. Þær hafa þegar nýst til að greiða fyrir fótboltaiðkun þess á árinu.

Dæmi 2

Barn var skráð árið 2025 í frístund sem náði aðeins til loka febrúar 2026. Bærinn greiddi 4.750 krónur á mánuði í janúar og febrúar. Þá hafa 9.500 krónur þegar verið nýttar af styrk ársins 2026.

Barnið á því:

65.000 kr. – 9.500 kr. = 55.500 kr.

55.500 krónur eru því eftir til ráðstöfunar á árinu 2026.

Já, þetta ruglar en hafið hugfast að frá 1. janúar 2027 verður þetta einfaldara. Breytingin árið 2026 stafar af því að verið er að færa frístundastyrkinn úr mánaðarlegu kerfi yfir í árlegt kerfi. Börnin fá fullan styrk.

Frá 1. janúar 2027 fá öll börn fullan frístundastyrk að nýju, óháð því hvernig styrkur ársins 2026 var nýttur.

Þá hefst hvert almanaksár með nýjum frístundastyrk og ekki verður hægt að ráðstafa styrk eins árs fram yfir áramót.

Í stuttu máli

  • Börn 6–18 ára fá 65.000 kr. á ári.
  • Börn 3–5 ára fá 32.500 kr. á ári.
  • Styrkurinn er nú árlegur í stað mánaðarlegs.
  • Ekki er lengur hægt að ráðstafa styrknum fram yfir áramót.
  • Árið 2026 er breytingaár vegna skuldbindinga sem stofnað var til árið 2025.
  • Upphæð sem þegar hefur verið greidd vegna frístunda barns á árinu 2026 dregst frá styrk ársins.
  • 1. janúar 2027 fá öll börn fullan frístundastyrk að nýju.

Markmiðið með breytingunni er að gera frístundastyrkinn sveigjanlegri og tryggja að hann nýtist börnum og fjölskyldum betur.

Já, Hafnarfjörður er heilsubær.

 

Ábendingagátt