Þjónusta við heimilislausa Hafnfirðinga efld
Hafnarfjarðarbær og Reykjavíkurborg hafa undirritað samstarfssamning um þjónustu við Hafnfirðinga sem eru heimilislausir eða búa við ótryggar aðstæður.
Samstarf við borgina í málefnum heimilislausra
Hafnarfjarðarbær og Reykjavíkurborg hafa undirritað samstarfssamning um þjónustu við Hafnfirðinga sem eru heimilislausir eða búa við ótryggar aðstæður.
Markmið samstarfsins er að tryggja einstaklingum með lögheimili í Hafnarfirði aukinn og samfelldari stuðning. Samningurinn tryggir meðal annars þeim sem nýta neyðarskýli Reykjavíkurborgar eða dvelja við ótryggar aðstæður þjónustu.
- Hafnarfjarðarbær fær sérstakan tengilið hjá Vettvangs- og ráðgjafateymis Reykjavíkurborgar, VoR teyminu.
- Tengiliðurinn mun vinna með einstaklingunum á vettvangi og tengja þá við viðeigandi þjónustu hjá Hafnarfjarðarbæ.
- Hann mun jafnframt starfa með stuðningsteymi bæjarins sem veitir fólki þjónustu sem hefur langvarandi reynslu af heimilisleysi en hefur nú fengið húsnæði.
Samningurinn tryggir að Hafnarfjarðarbær fái aukinn aðgang að þekkingunni og reynslunni sem byggst hefur upp innan VoR teymis Reykjavíkurborgar í þjónustu við fólk með miklar og flóknar stuðningsþarfir.
Hvað er VoR-teymið? VoR-teymið vinnur út frá heildstæðri og einstaklingsmiðaðri nálgun. Áhersla er lögð á skaðaminnkun, bata og að styðja fólk til sjálfshjálpar, virkni og þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum.
„Samningurinn hjálpar okkur hjá Hafnarfjarðarbæ að taka enn markvissar á málum þessa viðkvæma hóps og koma í réttan farveg innan bæjarins,“ segir Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður fjölskylduráðs Hafnarfjarðarbæjar.
„Við teljum að samstarf í þessum málaflokki sé alltaf af hinu góða og þess vegna er undirritun þessa samnings mjög ánægjuleg.“
Undirbúningurinn teygi sig til fyrra kjörtímabils. Þegar Margrét Vala Marteinsdóttirr, núverandi varaformaður gegndi formennskunni.
Samningurinn gildir í eitt ár frá því að starfsmaður tekur til starfa. Á samningstímanum verður haldið sérstaklega utan um umfang og eðli þjónustunnar og árangur samstarfsins metinn.