Helgin í Hafnarfirði: Valdimar í Hellisgerði, jóga og hamingja

Fréttir

Hamingjudagar setja enn svip sinn á Hafnarfjörð. Valdimar Guðmundsson syngur í Hellisgerði í kvöld, hægt verður að byrja laugardaginn á slökun í Hellisgerði. Á sunnudag tekur bókmenntadagskrá við í nýja bókasafninu.

Hamingjan býr í Hafnarfirði

Valdimar Guðmundsson stígur á svið í Hellisgerði kl. 20 í kvöld ásamt undirleikara sínum. HamingjuTónleikarnir eru hluti af Hamingjudögum Hafnarfjarðar og Helliskaffi í Hellisgerði verður opið fyrir gesti fyrir og eftir tónleika.

Þeir sem vilja hefja helgina á annarri nótu geta farið á Skítamóral í Bæjarbíói kl. 20. Já, þessi aldamótasveit er enn í fullu fjöri.

Laugardagur 26. september – slökun og Eyfi

HamingjuJógaNidra hefst kl. 12 í lautinni við Skúlaskeið í Hellisgerði. Kristjana Jökumsen hjá Hugur í hjarta leiðir stundina, þar sem þátttakendum gefst færi á að hægja á sér og slaka á í garðinum. Þetta er jafnframt síðasti viðburðurinn á Hamingjudögum í ár.

Sunnudagur 27. september – Guðrún Helgadóttir í Friðrikssal

FLUMBRA, fjelag hafnfirskra rithöfunda, býður til bókmenntastundar í Friðrikssal Bókasafns Hafnarfjarðar kl. 13–15. Að þessu sinni er Guðrún Helgadóttir, skáldmóðir Hafnarfjarðar, í brennidepli. Fjelagsmenn lesa úr verkum hennar, meðal annars Jóni Oddi og Jóni Bjarna, Í afahúsi og Óvitum. Aðgangur er ókeypis.

Já, þetta verður afar góð helgi hér í firðinum fagra. Njótum saman.

Ábendingagátt