Um 20 starfsmenn leikskóla setjast á skólabekk
Um 20 leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskóla Hafnarfjarðar eru nú sest á skólabekk til að efla íslenskukunnáttu sína. Markmiðið er að styrkja íslenskukunnáttu starfsfólks og gera íslenskuna að enn virkari hluta af daglegu starfi og samskiptum í leikskólunum.
Já, gefum íslenskunni tíma
Um 20 leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskóla Hafnarfjarðar eru nú sest á skólabekk til að efla íslenskukunnáttu sína. Fyrri hópurinn hittist í fyrsta sinn í morgun og sá síðari mætir í sína fyrstu kennslustund á morgun.
Ingibjörg Ingadóttir, íslenskukennari hjá Mími, heldur utan um námskeiðið og kennir. Hún fór yfir grunnþætti í morgun, sagði frá sjálfri sér, hvar hún hafði búið og hvernig fjölskyldan aðlagaðist misjafnlega málsamfélögunum.
Markmiðið er að styrkja íslenskukunnáttu starfsfólks og gera íslenskuna að enn virkari hluta af daglegu starfi og samskiptum í leikskólunum.
„Þetta er mikilvægt fyrir hafnfirskt samfélag, börnin á leikskólunum og starfsfólkið sjálft. Námið er hugsað sem valdefling fyrir starfsfólkið svo það geti sinnt starfinu á fjölbreyttari máta og náð lengra á sínu sviði,“ segir Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ.
Íslenskunni gefinn tími
Kennslan er hluti af verkefninu Gefum íslensku tíma sem Hafnarfjarðarbær hlaut 8.185.000 króna styrk til frá barna- og menntamálaráðuneytinu fyrr á þessu ári.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Mími-símenntun og byggir á kennsluaðferðum Íslenskuþorps Háskóla Íslands. Sérstök áhersla er lögð á starfstengt íslenskunám og að þátttakendur geti nýtt það sem þeir læra beint í daglegu starfi sínu í leikskólunum.
„Við viljum styrkja grunn íslensks málumhverfis í leikskólum og horfum til þess að tungumálanám er ekki aðeins á ábyrgð einstaklingsins heldur einnig samfélagsins,“ sagði Hildur Ýr einmitt þegar verkefnið var kynnt í byrjun árs.
Námið hluti af vinnudeginum
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á að skapa starfsfólki svigrúm til íslenskunáms samhliða starfi. Hver starfsmaður sem sækir námskeiðið fær einnig mentor í leikskólanum sínum til að auka enn kunnáttuna. Verkefninu er einmitt einnig ætlað að skapa fyrirmynd að því hvernig hægt er að flétta íslenskunám inn í daglegt starf og nýta vinnustaðinn sjálfan sem vettvang tungumálanáms.