Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina í veislu Bjössa Thor
Gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson hlýtur Gullnöglina í ár. Viðurkenningin var veitt í Gítarveislu Bjössa Thor, hátíð sem styrkt er af Hafnarfjarðarbæ.
Hrein Gítarveisla á Ægi 220 um helgina
Gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson hlýtur Gullnöglina í ár. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur haft markverð og varanleg áhrif á íslenskan gítarleik í gegnum árin.
„Það var einróma niðurstaða dómnefndar að Guðmundur hefði með einstakri spilamennsku sýnt og sannað að hann er gítarleikari á heimsmælikvarða,“ segir Björn Thoroddsen, Bjössi Thor gítarleikari, og upphafsmaður Gítarveislunnar. Afhending verðlaunanna fór fram rétt í þessu á Ægi 220 í Hafnarfirði við hátíðlega athöfn. Hátíðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ.
Í hópi fremstu tónlistarmannanna
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Guðmundur hafi um árabil verið í hópi fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar. Hann hafi ekki aðeins sett mark sitt á íslenska gítarsögu sem einstakur einleikari og tónskáld, heldur einnig sem afar eftirsóttur stúdíógítarleikari. Ferill hans spannar allt frá því að semja verk fyrir sinfóníuhljómsveit yfir í að spila með heimsþekktum stjörnum á borð við Patti Smith og Pinetop Perkins.
„Guðmundur býr yfir fágætri tónlistarnæmni og tækni sem nær út fyrir alla ramma. Hann hefur verið innblástur fyrir kynslóðir íslenskra gítarleikara og það var einróma niðurstaða okkar að enginn væri velkomnari að hljóta Gullnöglina í ár,“ segir Bjössi Thor, gítarleikari og upphafsmaður Gítarveislunnar.
Guðmundur Pétursson hefur hlotið fjölda viðurkenninga á ferli sínum, þar á meðal Íslensku tónlistarverðlaunin, en nýjasta plata hans, Wandering Beings, var valin plata ársins í sínum flokki árið 2024.