Fjölþjóðafánaborg við leikskólann Smáralund
Sextán þjóðfánar blöktu við leikskólann Smáralund á þjóðavikum sem lauk síðastliðinn föstudag. Þjóðarvikurnar hafa verið haldnar í um tvo áratugi á leikskólanum.
Þjóðavikur á leikskólanum Smáralundi
Sextán þjóðfánar blöktu við leikskólann Smáralund á þjóðavikum sem lauk síðastliðinn föstudag. Börnin kynntust löndum, tungumálum og menningu sem tengjast fjölskyldum þeirra og sungu vinsæl lög. Þjóðavikurnar hafa verið haldnar í um tvo áratugi og eru orðnar fastur liður í starfi leikskólans.
„Við höfum þessar vikur til að heiðra og virða menningu fjölskyldnanna og flagga þjóðfánum sem tengjast börnunum hér í Smáralundi. Við viljum sýna að við erum eitt lið, sama hvaðan við erum,“ segir Inga Fríða Tryggvadóttir, leikskólastjóri.
Kynnast ólíkum rótum hvers annars
Börnin skoða í þessum þjóðarvikum hvar löndin eru á kortinu, kynnast tungumálum og vinna fjölbreytt verkefni. Foreldrar taka þátt með því að segja frá því sem einkennir löndin þeirra og benda á uppáhaldslög á sínum tungumálum. Lögin hljóma svo í söngstundum leikskólans.
Tengsl barnanna við löndin liggja víða og geta meðal annars verið í gegnum foreldra, afa eða ömmur. Þjóðavikurnar gefa þeim tækifæri til að kynnast rótum sínum og uppruna félaga sinna.
„Börnunum finnst þetta gaman og við sjáum að foreldrar verða snortnir þegar við sýnum uppruna þeirra virðingu og tölum um hann. Þetta eykur líka samskiptin við foreldra þegar þeir koma með börnin og sækja þau,“ segir Inga Fríða.
Flagga fjölbreytileikanum
Hugmyndin að þjóðavikunum kviknaði þegar starfsfólk fór að skoða fjölbreyttan bakgrunn barnanna og hvernig mætti gera honum betur skil í leikskólastarfinu. Þá kom í ljós að tengsl fjölskyldnanna náðu til fleiri landa en starfsfólkið hafði fyrst gert sér grein fyrir.
Úr varð að flagga fánum þeirra landa sem börnin tengdust. Mest hafa fánarnir verið nítján, en í ár voru þeir sextán. Utanríkisráðuneytið hefur liðsinnt leikskólanum með því að lána skólanum fána.
Alla morgna á þjóðavikunum eru fánarnir dregnir að húni og síðdegis eru þeir teknir niður. Fánaborgin við Smáralund er þannig sýnileg áminning um fjölbreyttan uppruna barnanna og fjölskyldna þeirra, sem og samfélagið sem þau mynda saman.
Í ár voru fánarnir frá: Danmörku, Filippseyjum, Gana, Íslandi, Japan, Mexíkó, Nígeríu, Póllandi, Rúmeníu, Rússlandi, Slóveníu, Spáni, Sýrlandi, Taílandi og Víetnam.