Snyrtileikinn: Icelandair og íbúar við Miðvang fá viðurkenningu
Icelandair og íbúar í einbýlishúsunum við Miðvang 98–118 hlutu viðurkenningar Hafnarfjarðarbæjar í Snyrtileiknum 2026. Viðurkenningarnar eru veittar fyrir metnaðarfullt framlag til fegrunar bæjarins og snyrtilegt umhverfi.
Snyrtileikinn 2026 afhentur í blíðskaparveðri
Bank, bank og örstutt bið. Bryndís Gestsdóttir íbúi við Miðvang 100 opnar hurðina tekur á móti fulltrúum dómnefndar Hafnarfjarðarbæjar um Snyrtileikann 2026. Ljóst er að húsið hennar stendur við þá götu sem heillaði dómnefndina í ár. Íbúarnir í einbýlishúsunum við Miðvang 98–118 hlutu þessa viðurkenningu fyrir snyrtilega garða og fallega götumynd.
„Já, þessi hluti götunnar er til fyrirmyndar. Garðarnir opnir svo fleiri en eigendurnir geta notið, afar fjölbreytt litasamsetning en um leið mikill einfaldleiki,“ segir Ingibjörg Sigurðardóttir, garðyrkjustjóri Hafnarfjarðarbæjar.
Bryndís lýsir því hvernig þau hjónin hafi lagt upp úr því að hafa garðinn eins opinn og hægt er. „Við vorum með svo mikið af litlum barnabörnum þegar við fluttum hingað og við hugsuðum: Hvernig getum við lokað garðinum án girðingar en með gróðri þannig þau komist ekki út. Og um leið passað að hann yrði ekki of hár.“
Hildur Rós, Bryndís og Ingibjörg.
Þau hjónin umbyltu garðinum þegar þau fluttu í húsið fyrir tæpum fimmtán árum. Það hafði sín áhrif. Eigendur hvers hússins af fætur öðru löguðu sinn. Þessir nágrannar hjálpast einnig að við að halda gangstéttinni og gróðurbalanum við hana vel snyrtri. Já, götumyndin er til fyrirmyndar.
Icelandair með eftirtektarverða lóð
Icelandair hlaut viðurkenningu fyrir einstaklega snyrtilega fyrirtækjalóð að Flugvöllum 1. Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrirtækinu með viðurkenningunni fyrir framlag þess til fegrunar bæjarins. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, tók við viðurkenningunni ásamt sínu fólki.
Dómnefndin skrifar: „Lóðin og umhverfi fyrirtækisins eru til fyrirmyndar og sýna vel hvernig snyrtilegt og vel hirt athafnasvæði getur haft jákvæð áhrif á ásýnd nærumhverfisins.“
Höfuðstöðvar Icelandair.
Icelandair sem og íbúarnir við Miðvang fengu jafnframt inneignargjöf frá Hafnarfjarðarbæ vegna Snyrtileikans 2026. Þau fá plöntu að eigin vali frá gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg.
Fegurð og fortíð á Miðvangnum
Og snúum okkur aftur í íbúagötuna Miðvang. Hver íbúinn á fætur öðrum tekur við viðurkenningunni. Einu frumbyggjarnir í lengjunni, hjónin Sverrir og Margrét, byggðu húsið sitt að Miðvang 112 á árunum 1972-5. Þau standa í garðinum þegar dómnefndin kemur að.
„Við höfum alltaf hugsað fyrir garðinum og húsinu,“ segir Sverrir. Nokkur ár séu síðan þau umbyltu honum. „Já, átján tonn af mold fóru hérna niður.“ Hann segir mikilvægt að hafa garðinn einfaldan svo auðvelt sé að hirða um hann.
Sverrir og Margrét, frumbyggjar við Miðvanginn.Ingibjörg garðyrkjustjóri samsinnir því. „Sko, þetta einfalda er oftast bara best,“ segir hún. Garðarnir eigi það sameiginlegt að vera vel hirtir og gróskumiklir en um leið opnir að götunni. Gróðurinn sé nýttur til að afmarka lóðir án þess að loka þeim af og þannig verður til hlýleg og falleg heild sem vegfarendur geti notið.
Framlag sem fegrar Hafnarfjörð
Hildur Rós Guðbjargardóttir, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs og bæjarfulltrúi, veitti viðurkenningarnar ásamt Ingibjörgu Sigurðardóttur, garðyrkjustjóra Hafnarfjarðarbæjar.
„Já, hér við Miðvang er augljóslega gott að búa,“ segir hún. „Ég óska íbúunum sem og Icelandair til hamingju og færi þakkir fyrir að fegra Hafnarfjörðinn okkar.“
Markmið Snyrtileiksins er að vekja athygli á fólki, fyrirtækjum og öðrum sem leggja sitt af mörkum til að gera Hafnarfjörð fallegri og snyrtilegri. Sérstaklega var kallað eftir ábendingum frá íbúum og öðrum áhugasömum í sumar og bent á að framlagið geti birst með margvíslegum hætti; enda geri margt smátt sem eitt stórt.
Já, hann er fagur fjörðurinn okkar.