Göngum vel frá eignum fyrir haustlægðirnar

Fréttir

Nú þegar kröftugar haustlægðir eru í kortunum hvetjum við íbúa Hafnarfjarðar til að huga að frágangi í görðum og við hús. Með einföldum aðgerðum getum við dregið úr hættu á foktjóni og vatnssöfnun og tryggt að gangandi vegfarendur komist örugglega leiðar sinnar.

 

Trampólín og lausamunir í var

Kröftugar haustlægðir eru nú í kortunum. Við hvetjum íbúa Hafnarfjarðar til að huga að frágangi í görðum og við hús. Með einföldum aðgerðum getum við dregið úr hættu á foktjóni og vatnssöfnun og tryggt að gangandi vegfarendur komist örugglega leiðar sinnar.

Tökum trampólín niður og komum þeim í geymslu fyrir veturinn. Göngum einnig frá garðhúsgögnum, blómapottum, leikföngum og öðrum lausamunum sem geta fokið í hvassviðri. Tryggjum að sorptunnurnar séu vel festar.

Lauf úr niðurföllum

Hreinsum lauf og önnur óhreinindi frá niðurföllum við hús og á lóðum svo regnvatn eigi greiða leið. Gott er að fylgjast reglulega með niðurföllum meðan laufin falla, sérstaklega þegar spáð er mikilli rigningu.

Greið leið fyrir gangandi

Klippum greinar sem slúta út yfir gangstéttir og stíga. Gætum þess að þær sláist ekki í gangandi vegfarendur eða þrengi að leið þeirra. Gróður má heldur ekki skyggja á umferðarmerki eða götulýsingu.

Fylgjumst með veðurspám og viðvörunum og göngum frá áður en veðrið skellur á.

Hjálpumst að við að halda nærumhverfinu öruggu.

Ábendingagátt