Um 250 á íbúafundi um 260 íbúða hverfið við Krýsuvíkurveg
Um 250 mættu á íbúafund Hafnarfjarðarbæjar um tímabundna 260 íbúða byggð við Krýsuvíkur- og Hvaleyrarvatnsveg. Íbúar ræddu málið við formann bæjarráðs og framkvæmdaaðila.
Einingahúsabyggð við Krýsuvíkurveg í áratug
Bæjaryfirvöld munu taka með sér og skoða ábendingarnar sem komu fram á íbúafundi sem haldinn var á þriðjudagskvöld. Fundurinn var haldinn á Ásvöllum.
„Skýra þarf betur ákvæði í samningi Stólpa og Hafnarfjarðarbæjar um smáíbúðabyggðina við Krýsuvíkurveg,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs, í kjölfar fundarins. „Horfa þarf til ábendinga og athugasemda sem komu fram á íbúafundinum.“
Orri fór yfir verkefnið af hálfu Hafnarfjarðarbæjar á fundinum og þýðingu þess fyrir fjárhag bæjarins. Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa, og Sigurður Einarsson arkitekt kynntu framkvæmdina og útlit byggðarinnar. Þá fór Stefán Gunnar Thors umhverfishagfræðingur yfir skipulags- og umhverfisáhrifin. Erla Ósk Ásgeirsdóttir stýrði fundinum.
Tíu ára tímabundið hverfi
Orri kynnti að um væri að ræða tímabundna smáíbúðabyggð með parhúsum. Byggðin víki síðan þegar Búrfellslínan fari en þá verði skipulögð hefðbundin byggð á svæðinu. Horft sé til þess að fólk búi þarna að jafnaði til skemmri tíma.
Hann sagði framtakið skapa miklar tekjur fyrir sveitarfélagið. Leigan af svæðinu verði um 30 milljónir króna á ári. Þá fáist um 350-500 milljónir í útsvarstekjur á ári. Byggðin styrki stöðu bæjarins og bjóði farandfólki gæðahúsnæði á meðan þeir búi hér á landi.
Stefán lýsti hver næstu skref við vinnslu málsins yrðu og bar saman við nýtt aðalskipulag. Þá fóru umræður fram og margar spurningar og ábendingar bárust. En hvert er ferlið núna? Stefán lýsti því að málið væri á byrjunarreit.
Sjá má útlit íbúða og svæðis á myndum hér fyrir neðan frétt, en þeir Börkur og Sigurður fóru yfir hönnunina á fundinum. Spurningarnar sem bárust úr sal eftir kynningarnar voru fjölbreyttar.
Margar spurningar bárust
Helstu áhyggjurnar voru að byggðin skapaði félagslegan vanda og dreifa þyrfti erlendu vinnuafli víðar, en ekki hafa á einum stað.
- Ein spurði hvernig réttlæta mætti að semja við eitt fyrirtæki en ekki bjóða fleirum? Hún spurði hver hefði tekið ákvörðun að úthluta svæðinu án opins útboðs? Einnig hvernig hagsmunir bæjarbúa hafi verið tryggðir? Fleiri tóku undir það.
Fólk tjáði sig um stöðu þessa fólks sem þarna myndi búa. Það ætti ekki aðeins vinnuna undir sama aðilanum heldur einnig heimili sitt.
- Spurt var hver yrði kostnaður bæjarbúa við samkomulagið? Einnig hvort ekki væri í raun um framtíðarúthlutun svæðisins að ræða?
Orri sagði mörg fordæmi fyrir því að úthluta lóðum án útboða. Það væri gert með útdrætti en einnig til þeirra sem bæjaryfirvöld teldu akkur að fyrir bæjarbúa. Hann nefndi til að mynda lóðaúthlutun til Vigdísarholts fyrir hjúkrunarheimili og þegar Icelandair fékk afsláttarkjör af lóð við komu í bæinn. Um hvort ónæði yrði af byggðinni benti hann á svo væri til að mynda ekki vegna vinnubúða sem reistar hafi verið við breikkun Reykjanesbrautarinnar.
Kostnaðurinn borinn af framkvæmdaaðila
Orri lagði áherslu á að Hafnarfjarðarbær væri ekki að leggja fjármuni í verkefnið. Allur kostnaður væri borinn af Styrkás fasteignum, systurfélags Stólpa. Það væri mikilvægt. Það væri ekkert óeðlilegt að úthluta lóðunum í framhaldinu til fyrirtækisins. Það kaupi lóðirnar af bænum á föstu verði eftir deiliskipulagningu bæjarins.
„Við bjóðum út lóðir á þéttingarreitum en reglan í Hafnarfirði hefur verið sú að selja lóð á ákveðnu verði og ef margir sækja um að draga á milli þeirra.“
Fleiri spurningar bárust úr sal:
- Fundarmenn vildu vita hvað í samkomulaginu tryggði að Hafnarfjarðarbær fengi útsvar íbúanna og að fólkið hefði lögheimili á Íslandi – og þá í Hafnarfirði?
- Einnig hvort gerð hefði verið greining á því hvað það gæti kostað Hafnarfjörð þyrftu leigjendurnir að nýta félagsþjónustu bæjarins?
- Þá var spurt um hvernig auknu eftirliti á svæðinu yrði háttað og hvort hámarksfjöldi leigjenda yrði á hús?
Orri sagði að það væri skilyrði Hafnarfjarðarbæjar að leigjendurnir yrðu með lögheimili í Hafnarfirði. Varðandi félagsþáttinn sagði hann byggðina framfaraskref, húsnæðið væri betra en mörgum byðist. Það væri ekkert nýtt að erlent verkafólk ætti bæði húsnæði og vinnu undir vinnuveitenda sínum. Það væri kostir og gallar við allt fyrirkomulag, en að fyrirtæki leigi húsnæðið fyrir starfsfólk sitt lágmarki vanda sem geti skapast.
Auðugra land með fjölbreytninni
Orri lagði áherslu á að rúmur fjórðungur vinnuafls á Íslandi væru útlendingar. „Án þeirra værum við ekki jafn auðugt, gott og ríkt samfélag og við erum í dag.“
Börkur, forstjóri Stólpa, sagði almennt gert ráð fyrir einum íbúa í íbúð, en ekki yrði gerð athugasemd við það að starfsmaður fái til sín maka. Þar yrðu því aldrei fleiri en tveir í hverri.
- Spurt var hvort gerð hafi verið greining á hugsanlegum tekjum af svona byggð?
- Spurt var hvers vegna hafi ekki verið talað um þessa byggð fyrir kosningar?
Orri sagði að málið hefði ekki verið komið nægilega langt fyrir kosningar og óljóst hvort hugmyndin gæti orðið að veruleika.
- Íbúi sagði ekkert eins varanlegt á Íslandi og tímabundnar lausnir. Hún hvatti fólk til að dreifa byggðinni víðar um bæinn og forðast að byggja einsleita byggð. Þarna yrðu erlendir verkamenn einangraðir.
Orri sagði afar flókið yrði að fara í deiliskipulagsbreytingar til að byggja dreift um bæinn.
- Þá var spurt hvort Vinnumálastofnun mætti leigja húsnæði til að hýsa hælisleitendur.
Orri sagði Vinnumálastofnun ekki fyrirtæki og gæti því ekki leigt íbúðir á svæðinu.
- Spurt var hvort byggðin fengi að vera lengur yrði tengivirkið ekki farið að þessum tíu árum liðnum?
Svarið var að tekið yrði mið af línunni, því þegar hún víki væri hægt að skipuleggja varanlega byggð og flytja einingahúsin burt.
Rætt um íbúakosningu
Rætt var um íbúðakosningu og sagði Orri að reglan væri að 20% íbúa þyrfti að skrifa undir undirskriftarlista til að fá málið í íbúakosningu. Það væri þó ekki svo að bæjarstjórnin hreyfði sig ekki fyrr.
- Spurt var hvernig bæjaryfirvöld ætluðu að tryggja að einmitt þeir í óleyfisíbúðunum myndu flytja í þessar nýju íbúðir og hvernig yrði þá tryggt að óleyfisíbúðirnar fylltust ekki að öðru fólki?
Orri sagði að þarna teldi hann að framboð og eftirspurn hefðu áhrif. Með því að auka framboð myndi vandinn leysast smátt og smátt.
- Íbúi sagði Hafnarfjörð ævintýraland vegna hraunsins. Hún spurði af hverju svona byggð væri ekki reist fyrir Hafnfirðinga, yndisleg byggð, eins hæðar raðhús sem allir vildu eiga?
Orri sagði markmið bæjaryfirvalda að bjóða lítil sérbýli. Meðan Búrfellslínan liggi yfir svæðinu sé ekki hægt að byggja öðruvísi þarna.
- Spurt var hvort væri gert ráð fyrir því að þessir íbúðar gætu nýtt leikskólaþjónustu eignuðust þeir börn.
Svarið var að líf fólks þróist og breytist. Afar ánægjulegt væri að fjölskyldur myndist. Byggð sem þessi væri ekki hugsuð fyrir fjölskyldur og líklegt að fólk flytti annað.
Umræðan var málefnaleg og ekki tæmandi hér. Erla Ósk Ásgeirsdóttir var fundarstjóri og í lokaorðum sínum sagði hún ljóst að helstu áhyggjurnar væru félagslegi þátturinn og af samningnum sjálfum. Einnig hvert framhaldið yrði þegar þessum tíu ára samningi lyki sem og af einsleitninni. Hún þakkaði fólki fyrir að koma sjónarmiðum sínum vel á framfæri.
Ljóst er að umræðurnar munu hafa áhrif inn í komandi vinnu við skipulag svæðisins.
Já, Hafnarfjarðarbæjar þakkar öllum sem komu.