Hafnarfjarðarbær fær viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Fréttir

Hafnarfjarðarbær hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.

Jafnvægi kynjanna í efstu lögum

Hafnarfjarðarbær hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.

„Það er afar ánægjulegt Hafnarfjörður standi svo faglega að mannauðsmálum, það skiptir okkur öll máli. Til hamingju Hafnfirðingar. Takk mannauður Hafnarfjarðarbæjar,“ segir Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.

Viðurkenningin er staðfesting á því að Hafnarfjarðarbær hefur skapað vinnustað þar sem öll hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir íbúa, starfsfólk og samfélagið okkar allt.

Þórður Þórarinsson bæjarstjóri og Dröfn Gunnarsdóttir mannauðsráðgjafi.

Dröfn Gunnarsdóttir mannauðsráðgjafi segir meðvitund við ráðningar í efsta lag skipta öllu til að halda þessum árangri. Hafnarfjarðarbær fái nú viðurkenninguna í fjórða skipti.

Já, jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna. Hafnarfjarðarbær horfir til þess að halda áfram að gera svona vel og þakkar frábæru starfsfólki, sem hefur lagt sitt að mörkum til að gera þetta að veruleika.

Hafnarfjarðarbær þakkar Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna.

Ábendingagátt