Stuðningur við Hafnfirðinga á leið aftur til vinnu eða náms
Hafnarfjarðarbær og Stendur starfsendurhæfing hafa undirritað þjónustusamning um starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga sem þurfa heildstæða ráðgjöf og stuðning til að komast aftur til vinnu eða í nám. Þetta er tímamótasamningur, því hann er sá fyrsti sem sveitarfélag gerir við þessa sjálfstæðu endurhæfingarstöð.
Stendur endurhæfing stuðningur við fólkið okkar
„Það gefur starfinu gildi að sjá fólkið sem stundar hér endurhæfingu ná árangri,“ segir Sveindís Anna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Stendur starfsendurhæfingar, sem undirritaði samning við Hafnarfjarðarbæ í dag.
Hafnarfjarðarbær er fyrsta sveitarfélagið sem gerir formlegan samning við Stendur endurhæfingu en félagið þjónustar einnig Kópavog og Garðabæ. Hann snýst um að bjóða heildstæða ráðgjöf til íbúa sinna til að hjálpa þeim að komast aftur til vinnu eða í nám. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar virkni og þátttöku á vinnumarkaði með þjónustu sem tekur mið af þörfum hvers og eins.
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri segir samstarfið mikilvægt, enda skiptir það miklu máli að fólk sé virkt á og taki fullan þátt á atvinnumarkaði.
Samningurinn gildir frá 1. október 2026 til ársloka 2027.
Einstaklingsmiðuð endurhæfing
Samningurinn nær til einstaklinga sem ráðgjafar Hafnarfjarðarbæjar vísa til Stendur starfsendurhæfingar. Þjónustan er ætluð fólki sem hefur af einhverjum ástæðum þurft að hverfa frá vinnumarkaði um tíma eða hefur ekki náð þar fótfestu og vill komast til vinnu.
Sveindís segir árangur starfsendurhæfingarinnar ráðast meðal annars af ólíkum þörfum þátttakenda og stöðu á vinnumarkaði. Þegar þrengist um í atvinnulífinu geti verið erfiðara fyrir fólk með skerta starfsgetu að stíga sín fyrstu skref til vinnu. Þar geti atvinnurekendur gegnt mikilvægu hlutverki.
„Velvilji fyrirtækjanna skiptir mjög miklu máli. Og þar geta allir gert betur,“ segir hún hvetjandi.
Metið hvaða þjónusta hentar hverjum
En hvernig fær fólk þjónustuna? Formleg beiðni berst frá hafnarfjarðarbæ og í köfarið fer fram mat á stöðu og möguleikum einstaklingsins og unnin áætlun um næstu skref. Lögð er áhersla á að auka daglega virkni, efla starfsgetu og styðja þátttakendur við að ná markmiðum sínum.
Endurhæfingin getur meðal annars falist í fræðslu, stuðningi í hópum eða einstaklingsviðtölum og sérfræðiþjónustu eftir þörfum. Einnig getur hún falið í sér önnur úrræði, svo sem nám.
Að lokinni endurhæfingu getur tekið við þriggja til sex mánaða eftirfylgd til að styðja við aðlögun að vinnumarkaði eða námi. Hún getur meðal annars falist í reglulegum ráðgjafarviðtölum og stuðningi í samskiptum við atvinnurekendur og aðrar stofnanir. Jafnframt er unnið með jafnvægi í daglegu lífi, bjargráð og bakslagsvarnir.
Samningurinn kveður á um reglulegt samráð milli Stendur starfsendurhæfingar og ráðgjafa bæjarins um framvindu og næstu skref. Árangur endurhæfingarinnar er metinn sérstaklega, með það að leiðarljósi að stuðningurinn nýtist hverjum þátttakanda sem best.
Já, samtakamáttur í hverju samfélagi skipti miklu máli.