Mikil þátttaka í 30. Ratleik Hafnarfjarðar

Fréttir

Yfir 3.000 ratleikskort voru sótt í sumar og 253 lausnum skilað í 30. Ratleik Hafnarfjarðar. Mikil gleði var á uppskeruhátíðinni í síðustu viku.

Ratleikurinn meðal hefða Hafnfirðinga

Yfir 3.000 ratleikskort voru sótt í sumar og 253 lausnum skilað í 30. Ratleik Hafnarfjarðar. Aðeins þrisvar áður hafa fleiri skilað inn lausnum.

Ratleikurinn leiddi þátttakendur á 27 staði og fundu flestir þeirra sem skiluðu lausnum þá alla. Áætlað er að heimsóknir á ratleiksstaðina hafi verið að minnsta kosti 6.000 yfir sumarið.

Þátttakendur komu víða að. Hafnfirðingar voru fjölmennastir en einnig tóku íbúar annarra sveitarfélaga þátt, auk gesta frá Noregi og Ástralíu.

Fjölmenni á uppskeruhátíð

Tæplega 200 manns mættu á uppskeruhátíð Ratleiksins að Ásvöllum 14. október. Þar var farið yfir sumarið og sýndar myndir, meðal annars frá þátttakendum.

Veitt voru þrenn verðlaun í hverjum flokki. Steinarr Steinarrsson hlaut fyrstu verðlaun í flokki þrautakónga, Gunnhildur Ásta Traustadóttir í flokki göngugarpa og Elísabet Anna Jóhannsdóttir í flokki léttfeta.

Þrautakóngar fundu alla 27 staðina, göngugarpar að minnsta kosti 18 og léttfetar að minnsta kosti níu.

Góður stuðningur við Ratleikinn

Nítján fyrirtæki lögðu til samtals 65 útdráttarvinninga og börn meðal þátttakenda fengu einnig glaðning.

Heilsubærinn Hafnarfjörður hefur verið einn þessara diggu bakhjarla allt frá árinu 2019, enda ratleikurinn góð leið til þess auk þess að ýta undir hreyfingu og skemmtilega samverustund fjölskyldna og vina.

Hafnarfjarðarbær þakkar Guðna Gíslasyni og Ómari Smára Ármannssyni fyrir frábært starf í kringum þennan skemmtilega sið.

 

Myndir/Ratleikur Hafnarfjarðar

Ábendingagátt