Bleiki dagurinn fyrir okkur öll – Tökum þátt
Bleiki dagurinn er á morgun miðvikudaginn 21. október. Tökum öll þátt.
Bleiki dagurinn á morgun 21. október
Á Bleika deginum eru landsmenn allir hvattir til að vera bleikir – fyrir okkur öll. Bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.
Hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý og Jökull Jónsson. Slaufan varð til samhlíða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.
- Bleiki dagurinn er miðvikudaginn 21. október.
Ýmsar hugmyndir- heima og að heiman
- Bleikt morgunkaffi
- Bleikur hádegisverður
- Skreyta vinnustaðinn
- Klæðast einhverju bleiku
- Hafa verðlaun fyrir fatnað og skreytingar
Sendið sögur og myndir
Krabbameinsfélagið hvetur okkur öll til að senda sér skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á samfélagsmiðla og merkja #bleikaslaufan
Árverknisátak gegn krabbameinum
Bleikur október er árlegi árverknistími tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum í konum.