Föstudaginn 13. nóvember kl. 18 munu gítarleikararnir Björn Thoroddsen og Andrés Þór koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg. Á tónleikunum munu þeir bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá þar sem djassstandardar og þekktir poppslagarar fá nýjan búning í útsetningum fyrir tvo gítara.

Björn og Andrés eru báðir reyndir gítarleikarar sem hafa komið víða við á sínum tónlistarferli. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa sterkar rætur í djassinum en sækja jafnframt innblástur í ólíkar tónlistarstefnur. Á tónleikunum munu þeir leiða saman ólíka stíla og nálgun í lifandi samspili þar sem spuni, melódía og leikgleði verða í fyrirrúmi.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Síðdegistónar í Hafnarborg eru styrktir af Hafnarfjarðarbæ. Smelltu hér til að kynna þér tónleikadagskrá haustmisseris 2026 og sjá hvað er framundan í Hafnarborg. Ljósmynd: Ásta Magnúsdóttir (Ásta Magg).

Ábendingagátt