Heimahreyfing fyrir betra líf heima fyrir
Allt að 40 einstaklingar fá nú aðstoð við að efla styrk og færni á eigin heimili með heimahreyfingu Sóltúns heima. Hafnarfjarðarbær hefur samið um að efla þrótt einstaklinganna á tólf mánaða tímabili.
Heimahreyfing styrkir fólk heima fyrir
Allt að 40 einstaklingar fá nú aðstoð við að efla styrk og færni á eigin heimili með heimahreyfingu Sóltúns heima. Hafnarfjarðarbær hefur samið um að efla þrótt einstaklinganna á tólf mánaða tímabili. Markmiðið er að auka öryggi fólks við daglegar athafnir og styðja það til að búa sem lengst heima.
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri Sóltúns heima, segir þjónustuna sérstaklega henta fólki sem á erfitt með að sækja skipulagða hreyfingu utan heimilis. Þjálfunin miðist við að efla færni sem nýtist í daglegu lífi, svo sem að komast fram úr rúminu, fara á salerni og ganga um heimilið.
„Fólk er misvel á sig komið. Sumir eru hressir og geta gert æfingarnar. Aðrir eiga erfiðara með það en vilja styrkja sig og þá kemur sér vel að vera í styrktarþjálfun,“ segir Ósk.
Æfingar tvisvar í viku
Heimahreyfingin er ætluð fólki 67 ára og eldra. Tuttugu einstaklingar hófu þátttöku í fyrsta hópnum í haust. Aðrir tuttugu byrja í næsta hópi í desember.
Hver þjálfunarlota stendur í tólf vikur. Líkamleg færni er metin í upphafi og einstaklingsmiðað æfingaáætlun útbúin í framhaldinu. Starfsmaður Sóltúns heima kemur heim til þátttakanda tvisvar í viku og leiðbeinir við æfingar í 20–30 mínútur í senn. Færnin er metin aftur eftir sex vikur og í lok tímabilsins,“ segir Ósk.
Notast er við DigiRehab, æfingakerfi sem danskir sjúkraþjálfarar þróuðu fyrir eldra fólk. Kerfið er á íslensku og starfsmaður hefur spjaldtölvu meðferðis til að fylgja æfingaáætluninni. Starfsfólkið fær þjálfun í notkun kerfisins og leiðsögn við æfingarnar.
Meira öryggi í daglegu lífi
Ósk segir að minni styrkur og óöryggi við hreyfingu geti haft víðtæk áhrif á daglegt líf. Fólk geti til dæmis farið að veigra sér við að fara í fjölskylduboð vegna þess að það treysti sér síður til að komast um.
„Æfingarnar miða að því að styrkja meðal annars kvið- og lærvöðva og auka þannig öryggi við daglegar athafnir og gera fólki kleift að viðhalda færni,“ segir Ósk. Heimsóknirnar hafi jafnframt félagslegt gildi. Þátttakendur fái bæði stuðning við markvissa hreyfingu og félagsskap í leiðinni.
En er hægt að auka styrk og færni fram eftir öllum aldri? „Já,“ segir Ósk. Best sé að byrja snemma og halda sér við en alltaf sé hægt að efla þróttinn. „Með því að styðja við einstaklingin bætum við svo umgjörð allrar fjölskyldunnar.“
Sérsniðin aðstoð fyrir hvern og einn
Heimahreyfing er einn þáttur í starfsemi Sóltúns heima. Fyrirtækið veitir einnig heimaþjónustu og heimahjúkrun til skemmri eða lengri tíma, þar á á meðal félagslegt innlit. Sumir þurfa aðstoð við persónulega umönnun, aðrir við máltíðir, innkaup eða að sinna erindum.
Ósk segir að þjónustan taki mið af því hvað fólk þurfi hverju sinni. Markmiðið þarf að vera að fólki geti liðið vel heima hjá sér.
„Stuðningurinn þarf því að taka mið af því sem skiptir einstaklinginn máli og hjálpar honum að halda áfram að gera það sem gefur lífinu gildi.“