Fjögur fá styrk úr sjóði Friðriks og Guðlaugar

Fréttir

Tómas Vigur, Erlendur Snær, Andrés Thor og Guðrún Jóhanna fá öll styrk úr sjóði Friðriks og Guðlaugar þetta árið. Styrkirnir voru afhentir í Friðrikssal í Bókasafni Hafnarfjarðar í dag.

Styrkir úr sjóði Friðriks og Guðlaugar

Fjórir styrkþegar fá samtals eina milljón króna úr sjóði Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur í ár. Tómas Vigur og Erlendur Snær fá 150.000 króna námsstyrk hvor til að leggja stund á tónlistarnám.

Tveir styrkir renna til tónlistarviðburða í Hafnarborg. Hljómtónn, á vegum Andrésar Thor, fær 350.000 krónur til að halda tónleikaröðina Síðdegistóna í Hafnarborg. Guðrún Jóhanna fær sömu upphæð til að halda Sönghátíð í Hafnarborg.

Arfleifð hjónanna lifir í tónlistinni

Hafnfirðingar þekkja hjónin Friðrik og Guðlaugu meðal annars fyrir héraðssönginn „Þú hýri Hafnarfjörður“. Þau arfleiddu Hafnarfjarðarbæ að stórum hluta eigna sinna árið 1960. Þau óskuðu þess að stofnaður yrði sjóður til að styðja við tónlistarnám og efla tónlistarlífið í bænum.Sönglífið var þeim hjónum sérstaklega hugleikið. Sá siður hefur haldist að veita styrki úr sjóðnum á fæðingardegi Friðriks, 27. nóvember

Við óskum styrkþegum innilega til hamingju og hlökkum til að njóta tónlistarinnar með þeim.

Ábendingagátt