Ljósaganga gegn stafrænu ofbeldi á miðvikudag

Fréttir

Ljósaganga UN Women á Íslandi er á miðvikudag. Við hvetjum Hafnfirðinga til að taka þátt í Ljósagöngunni og sýna þolendum kynbundins ofbeldis stuðning í verki.

Samstaða gegn stafrænu ofbeldi

Ingileif Friðriksdóttir, María Rut Kristinsdóttir og Stella Samúelsdóttir leiða árlega Ljósagöngu UN Women á Íslandi miðvikudaginn 25. nóvember. Gangan hefst við Arnarhól í Reykjavík kl. 17. Hún markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.

UN Women beina sjónum að stafrænu ofbeldi í ár og segja að hatursfull og niðrandi ummæli á netinu beinist meðal annars að konum í opinberum stöðum, hinsegin fólki, innflytjendum og öðrum jaðarsettum hópum. „Endurteknar árásir geta haft alvarleg áhrif á líðan fólks og þátttöku þess í samfélaginu.“

Við hvetjum Hafnfirðinga til að taka þátt í Ljósagöngunni á miðvikudag og sýna þolendum kynbundins ofbeldis stuðning í verki.

Ábendingagátt