Tólf tillögur frá Ungmennaráði Hafnarfjarðar
Ungmennaráð Hafnarfjarðar lagði tólf tillögur fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi bæjarstjórnar þann 24. maí sl. Tillögurnar taka meðal annars til málefna á sviði skólastarfs, tómstundastarfs og skipulags í nánasta umhverfi. Bæjarstjórn tók jákvætt í allar tillögur Ungmennaráðs og samþykkti samhljóða að vísa þeim til umræða og afgreiðslu í viðeigandi ráðum.
Öllum tillögum vísað áfram til umræðu innan viðeigandi ráða
Ungmennaráð Hafnarfjarðar lagði tólf tillögur fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi bæjarstjórnar þann 24. maí síðastliðinn. Tillögurnar taka meðal annars til málefna á sviði skólastarfs, tómstundastarfs og skipulags í nánasta umhverfi. Bæjarstjórn tók jákvætt í allar tillögur Ungmennaráðs og samþykkti samhljóða að vísa þeim til umræða og afgreiðslu í viðeigandi ráðum. Tillögurnar eru þegar komnar til umræðu innan ráða og nefnda.
Tillögurnar eru eftirfarandi:
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að ungmennaráðið fái að koma að ráða- og nefndarstarfi í auknum mæli. Lagt er til að Ungmennaráðið fái ýmist áheyrnarfulltrúa eða almennan fulltrúa í ráð og nefndir. Vísað til umræðu bæjarráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að bæjarstjórn auki fræðslu um stjórnmál og kosningar í grunnskólum og beiti sér í kjölfarið fyrir lækkun kosningaaldurs í 16 ár. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sveitarfélagið geri enn betur í að tryggja aðgengi fatlaðs fólks til jafns við aðra, sérstaklega aðgengi að íþróttum. Vísað til umræðu fjölskylduráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að því verði tryggð viðunandi aðstaða til að funda þar sem lítill vinnufriður er í Hamrinum, ungmennahúsi. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sveitarfélagið meti starf ungmennaráðs að verðleikum og greiði fulltrúum laun fyrir fundarsetu. Vísað til umræðu bæjarráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að Hafnarfjarðarbær ráðist í róttækari aðgerðir í loftslagsmálum og setji á fót nefnd um loftslagsmál. Vísað til umræðu umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að félagsmiðstöðvar bæjarins skipuleggi sameiginlega hittinga að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að ráðist verði í frekari aðgerðir til að sporna gegn vaxandi fordómum í garð hinsegin fólks í samfélaginu og að brugðist verði við fordómum innan veggja grunnskólanna. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að Hafnarfjarðarbær skipti Mentor út fyrir Innu. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að ungmennahús Hafnarfjarðar verði sameinuð í eitt stórt ungmennahús sem gæti til dæmis verið staðsett í núverandi húsnæði bókasafns Hafnarfjarðar að Strandgötu 1. Tryggja þarf mótor-hluta Músík og mótor hentugt framtíðarhúsnæði. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að ókeypis verði í strætó fyrir börn yngri en 18 ára og að ferðir leiðar 19 verði tíðari. Vísað til umræðu umhverfis- og framkvæmdaráðs.
- Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að Hafnarfjarðarbær bjóði upp á íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Vísað til umræðu fræðsluráðs.
Um Ungmennaráð Hafnarfjarðar
Ungmennaráð Hafnarfjarðar er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13-18 ára. Áhersla er lögð á þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum ásamt því að koma skoðunum ungs fólks til réttra aðila innan stjórnkerfisins. Í Ungmennaráði sitja tveir fulltrúar úr hverjum grunnskóla í Hafnarfirði, þrír úr hverjum framhaldsskóla í Hafnarfirði og þrír fulltrúar sem eru valdir í gegnum Hamarinn að Suðurgötu 14. Starfsmenn ráðsins eru tveir og starfa þeir fyrst og fremst sem ráðgjafar og hafa því ekki áhrif á starfsemi þess. Markmið ráðsins að skapa vettvang og leiðir fyrir þá sem eru yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Þátttaka ungs fólks er mikilvæg til þess að bæta þjónustu og aðstæður þeirra. Á það fyrst og fremst við um málefni sem viðkemur ungu fólki á einn eða annan hátt og þau þekkja af eigin raun. Þar má nefna skólastarf, tómstundastarf og skipulag nánasta umhverfis.