Bíðum með sjósund — Skólplögn í mynni Hafnarfjarðar mynduð
Nauðsynlegt reynist að veita skólpi í höfnina vegna myndunar á skólplögn sem liggur neðan við verslunarmiðstöðina Fjörð. Myndunin er liður í undirbúningi á viðhaldsvinnu á lögninni. Sjósundsunnendur eru vinsamlega beðnir að hinkra með sundsprett á þessum svæðum þar til eftir 22. mars
Hinkrum með sjósund á svæðinu til 22. mars
Sjósundsunnendur eru beðnir um að bíða með sjósund við Höfnina fram til 22. mars.
Mynda á skólplögn sem liggur neðan við verslunarmiðstöðina Fjörð vegna fyrirhugaðrar viðhaldsvinnu. Það reynist því nauðsynlegt að veita skólpi í höfnina á meðan. Sjósundsunnendur eru vinsamlega beðnir að hinkra með sundsprett á þessum svæðum þar til eftir föstudaginn 22. mars.
Tilmælin ná til alls mynnis Hafnarfjarðar, þá sérstaklega á svæðinu hjá Krosseyri, við Herjólfsgötuna og Sundhöll Hafnarfjarðar.
Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!
