Ráðherra og sendiherra Póllands heimsóttu bókasafnið
Lilja Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, og Maciej Duszynsk, settur sendiherra Póllands hér á landi, heimsóttu Bókasafn Hafnarfjarðar á dögunum. Þau ræddu mikilvægi þess að halda pólskri menningu á lofti hér á landi.
Ráðherra skoðaði pólska hluta Bókasafnsins
Lilja Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, heimsótti Bókasafn Hafnarfjarðar á dögunum. Tilefnið var að Maciej Duszynsk, settur sendiherra Póllands hér á landi, vildi sýna henni öflugt safnið og ræða mikilvægi þess að halda pólskri menningu á lofti hér á landi.
Sylwia Zajkowska, bókasafnsvörður pólska hlutans, Hugrún Margrét, deildarstjóri á bókasafni – barna og ungmennastarf, og Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður bókasafnsins leiddu þau Lilju og Maciej um safnið í búningum, enda hrekkjavaka í Bókasafninu þann daginn.
Skoðuðu safnið og fengu upplýsingar
„Þau fengu leiðsögn um allt safnið og við sögðum þeim frá viðburðunum sem eru á næstunni,“ segir Sigrún og ítrekar mikilvægi pólska starfsins á safninu. „Við ræddum um hvað hægt væri að gera í framtíðinni til að styrkja menningartengsl á milli Póllands og Íslands,“ segir Sigrún.
Bókasafnið í Hafnarfirði er einmitt í fremstu röð þegar kemur að því að kynna pólska menningararfleið. Starfið hefur vaxið undanfarin ár. Úrvalið af pólskum bókum á safninu er afar gott og með því besta á landinu. Menningarviðburðirnir eru fjölmargir.
Mikilvægur þáttur samfélagsins
Markmið pólska starfsins á safninu er að gera fólki kleift að vera partur af samfélaginu en skilja sig ekki frá. Nýlega tók Sylwia Zajkowska við pólska starfinu á bókasafninu. Pólski þjóðhátíðardagurinn verður svo á bókasafninu þann 9. nóvember. Þá verða ættjarðartónleikar, fundur með pólskum rithöfundum, goðsögnin um Rzeszów drekann flutt og farið í ratleik með sporum pólsku dýranna!
- Kynntu þér dagskrá pólska dagsins hér.