Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun vekur undrun
Hafnarfjarðarbær hefur á síðustu árum umbylt hafnfirsku leikskólastarfi og starfsumhverfi þeirra. Unnið hefur verið markvisst að því að gera störf innan leikskóla bæjarins eftirsóknarverðari og starfsumhverfið meira heillandi. Sveitarfélagið hækkaði laun ófaglærðs starfshóps umfram almenna kjarasamninga frá og með febrúar 2023.
Aðgerðir bæjarins hafa umbylt hafnfirsku leikskólastarfi
Hafnarfjarðarbær hefur á síðustu árum umbylt hafnfirsku leikskólastarfi og starfsumhverfi þeirra. Unnið hefur verið markvisst að því að gera störf innan leikskóla bæjarins eftirsóknarverðari og starfsumhverfið meira heillandi.
Hæstu laun fyrir störf í leikskólum á landinu
Sveitarfélagið hækkaði laun ófaglærðs starfshóps umfram almenna kjarasamninga frá og með febrúar 2023. Það greiðir í dag fimm launaflokkum hærra en almennir samningar um störf á leikskólum. Auk þess greiðir sveitarfélagið fimm óunna yfirvinnutíma. Það kemur því mjög á óvart, í ljósi þess ábata sem starfsfólk leikskóla bæjarins nýtur umfram almenna kjarasamninga, að kjörstjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar standi nú fyrir atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun alls félagsfólks sem starfar í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar.
Öflugt leikskólastarf
Hafnarfjarðarbær er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur á leikskólum bæjarins. Stoltur af öflugu starfsfólki leikskólanna og af því að geta boðið almennu starfsfólki í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar hæstu laun fyrir störf í leikskólum á landinu. Ráðningar í störf innan leikskólanna hafa gengið vel undanfarin misseri. Yngstu börnin eru í dag 15 mánaða við innritun. Stjórnendur sveitarfélagsins sjá að aðgerðir sveitarfélagsins eru farnar að skila sér. Umbreytingin á leikskólunum hefur náð til allra starfshópa innan þeirra, þar með talið ófaglærðs starfsfólks, sem starfar samkvæmt kjarasamningi Hlífar. Bærinn hefur einnig stutt starfsfólk sitt til að sækja sér menntun í faginu. Fjöldi starfsmanna hefur nýtt þann stuðning samhliða störfum til réttindanáms í faginu.