Bæjarstjóri heimsækir KB Verk
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á iðnaðarsvæðinu á Hellnahrauni í Hafnarfirði síðustu mánuði og ár og hafa fjölbreytt fyrirtæki hreiðrað þar um sig og fjölgar enn í fyrirtækjaflórunni. Fjölmörg fyrirtæki og verktakar hafa tekið þátt í stækkun hverfisins með uppbyggingu á atvinnuhúsnæði sem hentar vel fyrir fjölbreytta og ólíka starfsemi. KB Verk er eitt þessara fyrirtækja.
Byggingarfyrirtæki sem byggir af fagmennsku og með auga fyrir umhverfinu
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á iðnaðarsvæðinu á Hellnahrauni í Hafnarfirði síðustu mánuði og ár og hafa fjölbreytt fyrirtæki hreiðrað þar um sig og fjölgar enn í fyrirtækjaflórunni. Fjölmörg fyrirtæki og verktakar hafa tekið þátt í stækkun hverfisins með uppbyggingu á atvinnuhúsnæði sem hentar vel fyrir fjölbreytta og ólíka starfsemi. KB Verk er eitt þessara fyrirtækja en höfuðstöðvar félagsins eru á Álfhellu í Hafnarfirði. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, heimsótti eigendur á verkstað til að fá kynningu á starfseminni og núverandi byggingarverkefnum.
„Eftirspurn eftir lóðum, húsnæði og iðnaðarbili á svæðinu hefur verið mjög mikil. Umhverfið þykir fallegt og staðsetningin góð, svona rétt við stóra samgönguæð, sjálfa Reykjanesbrautina. Við svörum ákalli verktaka og erum að skipuleggja fleiri lóðir á svæðinu sem vonandi fara í úthlutun strax í haust,“ segir Valdimar. „Það er frábært að fá tækifæri til að heimsækja KB Verk sem getið hefur sér gott orð innan bæjarins“.
Sérhæfa sig í byggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis
KB Verk er byggingafélag sem stofnað var árið 2017 og sérhæfir sig í byggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Eigendur eru Kolbeinn Viðar Jónsson og Björgvin Unnar Ólafsson. Kolbeinn er lærður tannlæknir og starfar sem slíkur í hjáverkum og Björgvin sem smiður. Björgvin ber þar af leiðandi hitann og þungann af verklegum framkvæmdum meðan Kolbeinn sér um reksturinn. Þeir eru mágar og segja að óhætt sé að tala um fyrirtækið sem fjölskyldufyrirtæki.
„Yngsti starfsmaðurinn er sonur minn 14 ára sem vinnur sem handlangari og sá elsti tengdafaðir minn sem sendur er í fjölbreytt verkefni um allan bæ. Hann er kominn á aldur og við að gera tengdamömmu greiða,“ segir Kolbeinn og glottir. „Í heild eru fastráðnir starfsmenn tíu talsins og svo eigum við í föstu og góðu viðskiptasambandi við undirverktaka sem sérhæfa sig í alls konar verkefnum“.
KB Verk leggur mikla áherslu á góða hönnun, fagleg vinnubrögð og gæði byggingarefna. Fyrirtækið tekur að sér alhliða smíðavinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Í pípum KB Verks þessa dagana er, auk uppbyggingar á einbýlishúsi og raðhúslengju í Áslandi 4, uppbygging á þremur iðnaðarhúsum á Breiðhellu 3 með samtals 26 iðnaðarbilum. Smærri fyrirtæki taki eitt bil á meðan önnur taka undir sig heilt hús allt eftir stærð og starfsemi. Reynslan hefur kennt fyrirtækinu að innrétta og smíða iðnaðarbilin í takti við þarfir hvers og eins. „Við búum við það lúxusvandamál þessa dagana að þurfa ekkert að auglýsa. Vefurinn okkar er snertiflötur viðskiptavina við okkur og afspurnin góð. Við leggjum áherslu á hafa snyrtilegt og fallegt í kringum húsnæði okkar og finnum að viðskiptavinir okkar kunna vel að meta það,“ segir Kolbeinn
Fáðu bæjarstjórann í heimsókn
Fyrirtæki í Hafnarfirði geta haft samband og lýst yfir áhuga á að fá bæjarstjóra í heimsókn með pósti á netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is og í síma: 585-5500.
