Við erum jólabærinn. Jólablaðið 2025 er komið út
Jólablað Hafnarfjarðar 2025 er komið út! Jólablaðið er gefið út í sömu viku og Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar ár hvert. Jólablaðið hefur þann eina og sanna tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð og gleðja andann.
Jólin í Hafnarfirði betri með Jólaþorpinu
Nú er gaman. Það er að kvikna á jólabænum í Hafnarfirði. Ljósin skreyta bæinn og fjölskyldur og vinahópar geta upplifað saman hlýlega og afslappaða jólastemningu í jólabænum okkar.
Já, Hafnarfjarðarbær tekur fagnandi á móti jólahátíðinni og aðventunni með sínu árlega jólaþorpi, ljósadýrð og ævintýraveröld í Hellisgerði, Hjartasvelli og svo miklu fleiru.
- Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar með hátíðardagskrá föstudaginn 14. nóvember.
- Helgin öll í Jólaþorpinu verður stórkostleg.
Jólablað Hafnarfjarðar 2025
Jólablað Hafnarfjarðar 2025 er komið út! Jólablaðið er gefið út í sömu viku og Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar ár hvert. Jólablaðið hefur þann eina og sanna tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð fyrir öllum áhugasömum, fyrir gestum og gangandi og varpa ljósi á þann hlýleika og fjölbreytileika sem býr með fólkinu og fyrirtækjunum í jólabænum Hafnarfirði.
Efnið í jólablaðinu á það sameiginlegt að vera hluti af samfélaginu og því sem fær hjarta Hafnarfjarðar og Hafnfirðinga til að slá. Jólablaðinu er dreift í yfir 70.000 eintökum með aldreifingu Morgunblaðsins auk þess að verða aðgengilegt eftir helgi í Fjarðarkaupum, Firði verslunarmiðstöð, þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Bókasafni Hafnarfjarðar, Hafnarborg og Byggðasafni Hafnarfjarðar.
Jólablað Hafnarfjarðar 2025 – vefútgáfa: