Hátíðleg dagskrá í hjarta Hafnarfjarðar á opnunarkvöldi Jólaþorpsins!

 

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani föstudaginn 14. nóvember þegar ljósin verða tendruð á Cuxhaven-jólatrénu. Sendiherra Þýskalands, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður-Cuxhaven sjá um að tendra ljósin á trénu. Jólatréið er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi til 37 ára, og mun það lýsa upp Jólaþorpið á aðventunni.

 

Kl. 17:00 Jólaþorpið opnar
Kl. 18:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Kl. 18:15 Karlakórinn Þrestir
Kl. 18:30 Tendrað á ljósunum á Cuxhaven jólatrénu
Kl. 18:40 Bestu jólalög barnanna – Árni Beinteinn og Sylvía

Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 14. nóvember.

  • Föstudaga frá kl. 17-20
  • Laugardaga frá kl.13-20
  • Sunnudaga frá kl. 13-18

Kaffihúsið í Hellisgerði verður opið á opnunartíma Jólaþorpsins og alltaf til kl. 20 þau kvöld. Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum.

Við erum jólabærinn Hafnarfjörður. Við tökum hlýlega á móti þér og þínum!

Allt um jólabæinn Hafnarfjörð 👉 hfj.is/jol

Fylgdu okkur á Facebook og instagram !

Ábendingagátt