Níu jólaskreytt heimili og tvö fyrirtæki fá viðurkenningu

Fréttir

Níu heimili og tvö fyrirtæki fengu viðurkenningu fyrir jólaskreytingar í Jólaþorpinu á föstudag. Tvö fyrirtæki voru einnig verðlaunuð, Burkni og verslunin Kaki. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar velur best skreytta húsinu eftir ábendingu íbúa.

Já, við erum jólabærinn

Hafnfirðingar settu svo sannarlega upp stóru jólagleraugun þegar þeir litu í kringum sig og tilnefndu best skreyttu jólahúsin í bænum. Ríflega hundrað ábendingar bárust.

„Það hefur verið krefjandi en dásamlegt verkefni að velja úr öllum þessum glæsilegu tilnefningum,“ sagði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, formaður menningar- og ferðamálanefndar við afhendinguna á föstudag.

„Hvert og eitt hús og fyrirtæki sem hér er heiðrað í dag á það sameiginlegt að hafa lagt metnað, kærleika og sköpunargleði í að lýsa upp skammdegið fyrir okkur öll. Þessar viðurkenningar eru okkar leið til að segja takk fyrir að gera jólabæinn Hafnarfjörð jafn ævintýralegan og raun ber vitni,“ sagði hún.

Sjáum hvaða hús stóðu upp úr í ár:

  • Blómvangur 1 „Við Blómvang 1 hafa eigendur skapað stílhreina og fallega jólaumgjörð sem lífgar verulega upp á hornið þar sem húsið stendur. Glæsileg hreindýr og vandaðar skreytingar gefa húsinu tignarlegan og klassískan svip sem fangar augað og færir öllum vegfarendum sanna hátíðarstemningu.“
  • Hafravellir 12 „Hafravellir 12 hlýtur viðurkenningu fyrir einstaka litadýrð og metnað, en íbúar hafa haldið áfram að bæta við ævintýralegar skreytingar sínar ár frá ári. Það er dásamlegt að sjá hvernig húsið gleður augu leikskólabarna í nágrenninu og skapar ómælda jólagleði fyrir bæði börn og fullorðna.“
  • Furuvellir 19 „Furuvellir 19 er sannkallað jólaævintýraland og eitt mest skreytta hús Hafnarfjarðar, þar sem eigendur toppa sig í frumleika og litagleði á hverju ári. Garðurinn er töfrum líkastur og veitir nágrönnum og gestum einstaka upplifun sem einkennist af miklum metnaði og sönnum jólaanda.“
  • Heiðvangur 28 „Við Heiðvang 28 mætir manni hugmyndaríki og mikil gleði í formi litríkra skreytinga sem njóta sín sérstaklega vel á þessum áberandi hornlóð. Það skín í gegn að skreytingarnar eru settar upp með kærleika til að fegra umhverfið og kæta alla þá sem leið eiga hjá.“
  • Heiðvangur 60 „Heiðvangur 60 fær viðurkenningu fyrir fallega og heildstæða jólaásýnd þar sem húsið er skreytt af miklum smekk bæði að framan og aftan. Litrík ljósin skapa hlýlegan ramma utan um heimilið og prýða götumyndina til muna.“
  • Sævangur 15 „Sævangur 15 er sannkölluð jólaparadís þar sem hugað er að hverju smáatriði í litríku og miklu ævintýri sem blasir við öllum þeim sem fara um Hjallabrautina. Ljósadýrðin er til mikillar fyrirmyndar og lífgar dásamlega upp á umhverfið með fjölbreyttum litum og formum.“
  • Unnarstígur 1 „Húsið við Unnarstíg 1 nýtur sín einstaklega vel þar sem það stendur uppi á hæð og skartar stílhreinum ljósaseríum sem ramma inn pall og garð. Með hverju árinu hafa eigendur bætt við lýsinguna af mikilli smekkvísi þannig að hún fellur fullkomlega að náttúrulegu umhverfi hússins.“
  • Sævangur 52 „Við Sævang 52 er plássið nýtt á einstaklega snjallan og fallegan hátt með mikilli ljósadýrð sem umlykur garðinn og húsið. Fallegar skreytingar við innganginn og samfelldar seríur á runnum sem umlykja garðinn skapa hlýlegan og samfelldan jólabrag.“
  • Álfaskeið 102-104 „Sólborg Hulda á Álfaskeiði 102-104 fær sérstaka viðurkenningu fyrir að lífga upp á fjölbýlishúsið með miklum og fallegum skreytingum sem skera sig úr. Þetta framtak sýnir hvernig hægt er að skapa mikla jólastemningu í blokk og færa öllum nágrönnum og vegfarendum aukna birtu og gleði.“

Tvö fyrirtæki fengu viðurkenningu fyrir smekklegar skreytingar.

  •  Burkni „Blómabúðin Burkni hlýtur viðurkenningu fyrir smekklegar og miklar jólaskreytingar sem falla fullkomlega að andanum í Jólaþorpinu. Hin ríkulega ljósadýrð í gluggum og við verslunina dýpkar jólastemninguna í miðbænum og býður gesti velkomna með miklum hlýleika.“
  • Kaki „Verslunin Kaki er til fyrirmyndar þegar kemur að jólaskreytingum við Strandgötuna, með glæsilega upplýsta glugga sem fanga augað. Þessi metnaður við að skreyta búðarglugga sína með ljósaseríum gerir jólabæinn okkar enn fallegri og hvetur aðra til að taka þátt í að fegra miðbæinn.“

Guðbjörg Oddný þakkaði öllum sendu inn ábendingar sem og þeim sem skreyta húsin sín og fyrirtæki svona fallega í aðdraganda jóla. „Það eru þessi sameiginlegu kraftaverk okkar Hafnfirðinga sem gera það að verkum að hér er gott að vera í skammdeginu,“ sagði hún.

„Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og njótið áfram dýrðarinnar í jólabænum okkar.“

Ábendingagátt