Almyrkvinn – Risagleraugu á Hamarinn og við Keili
Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli meðal þeirra staða sem bæjarbúar og gestir eru hvattir til að velja til að njóta augnabliksins þegar almyrkvi verður á sólu. Einnig er hægt að koma saman á bílastæðinu við golfvöll Keili.
Hafnarfjörður klár fyrir almyrkvann
Það styttist í einn stórfenglegasta náttúruviðburð sem sést hefur á Íslandi um aldir. Miðvikudaginn næsa, 12. ágúst, verður almyrkvi á sólu sýnilegur hér á suðvesturhornin og sunnanverðum Vestfjörðum. Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli meðal þeirra staða sem bæjarbúar og gestir eru hvattir til að velja til að njóta augnabliksins. Einnig bendum við á bílastæðið við golfvöll Keili.
Risagleraugu á Harminum og við Keili
Til að gera upplifunina enn skemmtilegri mun Hafnarfjarðarbær koma fyrir risastórum sólmyrkvagleraugum á Hamrinum og við minnisvarðann hjá golvelli Keilis. Það er gert í samstarfi við Sólmyrkva2026.is. Gestir geta stigið inn í gleraugun, tekið myndir og skapað skemmtilegar minningar á þessum sögulega degi.
- Munum að nota aðeins viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólina fyrir og eftir almyrkvann.
- Hafnarfjarðarbær býður öllum hafnfirskum börnum, 17 ára og yngri, viðurkennd gleraugu. Þau má nálgast í sundlaugum bæjarins, Bókasafni Hafnarfjarðar, Byggðasafni Hafnarfjarðar, í Hafnarborg og í þjónustuveri bæjarins á meðan birgðir endast.
Almyrkvinn sjálfur stendur aðeins yfir í rúma mínútu en sjónarspilið hefst mun fyrr. Deildarmyrkvinn hefst um klukkan 16:47 og hámark almyrkvans verður um klukkan 17:49.
Við hvetjum ykkur því til að mæta tímanlega, njóta stemningarinnar með nágrönnum ykkar og fylgjast með þegar tunglið færist smám saman fyrir sólina. Í Hafnarfirði verður almyrkvinn sýnilegur í allt að 68 sekúndur, allt eftir staðsetningu.
Söguleg stund
Já, það verður stórfenglegt enda hefur engin kynslóð Hafnfirðinga upplifað almyrkva frá Hafnarfirði fyrr en nú í ágúst 2026.
- Síðasti deildarmyrkvi í Hafnarfirði var 30. júní 1954 (99,1% huldist).
- Fyrsti almyrkvi sem sést frá Hafnarfirði í skráðri sögu verður 12. ágúst 2026, þegar myrkrið stendur í um 1 mínútu og 5–8 sekúndur, eftir því hvar í bænum er staðið.
Tónlistarhátíð á Víðistaðatúni
Já, Hafnarfjörður trekkir að þennan einstaka dag. Búist er við sjö þúsund gestum á tónlistarhátíðina Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar & Smekkleysu sem haldin verður á Víðistaðatúni. Búast má við fyrstu gestum um hádegisbilið á túnið, en þá opnar svæðið.
Við hlökkum til að sjá bæjarbúa og gesti koma saman á Hamarinum og við Ástjörn og upplifa saman eitt eftirminnilegasta náttúruundur sem Ísland hefur upp á að bjóða.
Upplifum söguna saman!