Áslandsskóli hleypur til góðs

Fréttir

Allt frá árinu 2007 hefur starfsfólk Áslandsskóla tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni og mun hópur frá skólanum hlaupa til góðs í ár líkt og undanfarin ár. 32 hafa skráð sig til leiks í ár og munu ýmist hlaupa 10 kílómetra eða hálft maraþon til styrktar Íþróttafélaginu Firði.

Allt frá árinu 2007 hefur starfsfólk
Áslandsskóla í Hafnarfirði tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni og mun hópur frá
skólanum hlaupa til góðs í ár líkt og undanfarin ár. Þrjátíu og tveir
starfsmenn hafa skráð sig til leiks og munu ýmist hlaupa 10 kílómetra eða hálft
maraþon til styrktar Íþróttafélaginu Firði.


heilsusamlega hefð hefur skapast meðal starfsmanna Áslandsskóla í Hafnarfirði
að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og er það starfsmönnum
sjálfum í sjálfsvald sett hvaða vegalengd er hlaupin hverju sinni. Þannig hefur
hópurinn hlaupið allt frá 10 kílómetrum upp í heilt maraþon. Þátttakan hefur mikið
skemmtigildi fyrir starfsmenn og líka keppnisgildi þar sem í hópnum leynast
starfsmenn sem vilja toppa sig á milli ára. Aðrir hlaupa til að vera með, ná persónulegum
sigrum og leggja áherslu á að njóta en ekki þjóta. Þátttaka í hlaupi hefur hin
síðustu ár haft þær ánægjulegu afleiðingar að starfsmenn hittast utan vinnu til
æfinga og hefur nokkuð stór hópur verið að hlaupa annað hvort með hlaupahópi FH
eða Hauka í Hafnarfirði. Þátttaka í samhlaupi Áslandsskóla hefur farið
stigvaxandi á milli ára. 

Hlaupið til góðs fyrir þá sem eru
andlega og/eða líkamlega fatlaðir

Öllum
hlaupurum í Reykjavíkurmaraþoni gefst kostur á að hlaupa til styrktar góðu
málefni. Starfsfólk Áslandsskóla hleypur til styrktar Íþróttafélaginu
Firði í Hafnarfirði og hefur gert undanfarin ár.  Íþróttafélagið Fjörður var stofnað í júní
1992 og sinnir þörfum þeirra sem eru andlega og/eða líkamlega fatlaðir.  Hjá Firði fá einstaklingar á öllum aldri
tækifæri til að koma saman og iðka skemmtilegar íþróttir í góðum félagsskap. 

Ábendingagátt