Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir var samþykkt að fara fram á það við ráðherra að hann endurskoði ákvörðun sína um samruna Iðnskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans…
Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir var samþykkt að fara fram á það við ráðherra að hann endurskoði ákvörðun sína um samruna Iðnskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans og hafi samráð og samvinnu við fulltrúa hagsmunaaðila, starfsfólks, nemenda, atvinnulífs og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði um stöðu og framtíð skólans.
Bæjarstjóri hefur nú þegar óskað eftir fundi með menntamálaráðherra vegna þeirrar stöðu sem upp er komin.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar óskar eftir skýrum svörum frá menntamálaráðherra um eftirtalin atriði, sem hún telur ekki nægjanlega skýr við ákvarðanatökuna:
Óskað er eftir upplýsingum um hvernig yfirvöld hyggjast standa að boðaðri sameiningu skólanna.
1.Með hvaða hætti er áætlað að tryggja áframhaldandi starfsemi í Hafnarfirði?
2.Hvaða námsgreinar er fyrirhugað að kenna í Hafnarfirði?
3.Með hvaða hætti er fyrirhugað að tryggja starfsmönnum Iðnskólans í Hafnarfirði áframhaldandi störf?
4.Eru áform um að skólagjöld hækki frá því sem nú er í Iðnskólanum í Hafnarfirði?
5.Er áætlað að sameinaður skóli komi til móts við nemendur hvað aukinn ferðakostnað varðar?
Óskað er eftir nánari sundurliðun á því í hverju hagræðingin af sameiningu myndi felast.
1.Hver er áætlaður sparnaður ríkisins?
2.Hver er áætluð hagræðing sameinaðs skóla?
3.Er ætlunin að tryggja að mögulegt fjárhagslegt svigrúm sem skapa á vegna hagræðingar verði nýtt til eflingar iðnnáms, í Hafnarfirði sem og annars staðar?
4.Óskað er eftir upplýsingum um hvernig tryggt sé að iðnnám haldist og eflist í Hafnarfirði og hvort ríkið muni gera það að skilyrði í boðuðum samningi um samruna.
5.Óskað er eftir nánari skýringu á hvernig þessi þessi sameining, ef af verður, hjálpar til við að fjölga nemendum í iðngreinum, jafnt í Hafnarfirði sem og annars staðar á landinu.
6.Óskað er eftir upplýsingum um hvort skoðun hafi verið gerð á annarri mögulegri skörun og samnýtingu skóla, t.d. við Flensborgarskóla í Hafnarfirði.
7.Óskað er eftir upplýsingum um hvort þessi aðgerð sé liður í stærri áætlun um eflingu iðnnáms á Íslandi og þá með hvaða hætti. Hvaða aðrar aðgerðir eru í gangi af hálfu stjórnvalda til að ná því marki að efla iðnnám í landinu?
Óskað er upplýsinga um skipan í starfshóp ráðherra sem fjallaði um sameiningu skólanna:
1.Var óskað tilnefninga m.a. frá Hafnarfjarðarbæ eða skipaði ráðherra fulltrúa í hópinn án tilnefninga?
2.Hvernig var samráði að öðru leyti við sveitarfélagið háttað
Iðnskólinn í Hafnarfirði rekur göngu sína til ársins 1928 og á því nærri 90 ára sögu í bænum sem ein af grunnmenntastofnunum bæjarins. Skólinn er með sterk tengsl við samfélagið, bæði fyrirtækin í bænum og grunnskólana auk þess sem bæjaryfirvöld hafa stutt við starfið með beinum hætti. Sú ákvörðun menntamálaráðherra að heimila samruna hans og Tækniskólans ehf. eftir stuttan aðdraganda vekur ugg um að afleiðingar þess verði skellur fyrir iðnnám og skólastarf í Hafnarfirði.
Iðnskólinn í Hafnarfirði er eini iðnskólinn hér á landi sem rekinn er af hinu opinbera. Boðuð einkavæðing hans og samruni við Tækniskólann ehf. gengur þvert gegn yfirlýstri andstöðu starfsmanna skólans og bæjaryfirvalda í Hafnarfirði.
Rán Sigurjónsdóttir, nemi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, heldur einstaka listasýningu í The Shed í byrjun september, á vegum…
Nú má hlaða rafbílinn við allar sundlaugar bæjarins, fjölda grunnskóla og stofnanir. Hafnarfjarðarbær hefur samið við Ísorku til fimm ára…
„Við erum hér fyrst og fremst með heimagerðan hafnfirskan ís,“ segir Björn Páll Fálki Valsson við hringhúsið á Thorsplani þar…
Götuvitinn er öryggisnet fyrir unga fólkið okkar og starfar nú í fyrsta sinn að sumri til. Unga fólkið þekkir Götuvitann…
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hefur fært Hafnarfjarðarbæ fjóra bekki við stíginn upp frá Kaldárselsvegi í Kaldársel. Bæjarstjóri tók við gjöfinni á dögunum.…
Alþjóðatengsl voru efld þegar kínversk sendinefnd frá Changsha varði dagsparti í Hafnarfirði. Hún kynntist bæjarfélaginu og þremur fyrirtækjum bæjarins á…
Byggingarverktakafyrirtækið Verkland hefur hlotið sína fyrstu Svansvottun fyrir fjölbýlishús við Áshamar 42–48. Svansvottun tryggir að húsnæði sé heilnæmt.
Kvartmíluklúbburinn fagnaði 50 ára afmæli í gær. Hafnarfjarðarbær ritaði undir samstarfssamning á afmælishátíðinni og flytur Mótorhúsið til klúbbsins.
Iða Ósk Gunnarsdóttir vinnur að sinni fyrstu ljóðabók á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár. Útlit bókarinnar tekur innblástur…
Íris Egilsdóttir vinnur að því að hanna og útfæra prjónað verk á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár. Verkið,…