Bærinn vill öflugt eftirlit með ólykt

Fréttir

Ábendingar hafa verið að berast til bæjarins vegna ólyktar sem rakin er til fyrirtækisins Colas Íslands. Hafnarfjarðarbær hvetur Umhverfis- og orkustofnun til að halda þétt á málinu.

Unnið að lausn vegna ólyktar frá bikstöð

Ábendingar hafa verið að berast til bæjarins vegna ólyktar sem rakin er til fyrirtækisins Colas Íslands og biks þess við Óseyrarbraut í Hafnarfirði. Umhverfis- og orkustofnun var við eftirlit í gær. Unnið er að lausn.

Samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar, sem sér um eftirlit með mengandi starfsemi, verður gerð krafa um að fyrirtækið skili inn tímaáætlun um úrbæturnar. Stofnunin setur einnig kröfur um að upplýsa um hvert skref í ferlinu.

Colas leitar réttra lausna

Björk Úlfarsdóttir, sviðsstjóri hjá Colas, segir félagið leita lausna með frönsku fyrirtæki en fulltrúi þess sé nú hjá þeim. Lausnin sé í sjónmáli og unnið að því að aðlaga hana að starfsemi fyrirtækisins. Tímalína verði gerð og hún kynnt. „Við vinnum eins hratt og við mögulega getum,“ segir hún.

Colas er rótgróið fyrirtæki í Hafnarfirði með yfir 100 starfsmenn og ríflega 30 ára sögu. Bikstöðin er hluti starfseminnar og grunnur malbiksframleiðslu, sem eru ær og kýr fyrirtækisins. „Bikið er aðalhráefnið í malbikið.“

Björk segir að svo virðist sem vestanáttin hafi sótt í sig veðrið í Hafnarfirði svo íbúar finni nú frekar lykt en áður. „En bikfarmarnir eru mislyktarmiklir. Við fáum farm frá öðrum stað í júlí og vonum að ónæðið minnki þegar hann kemur.“

Bærinn hvetur til öflugs eftirlits

Hafnarfjarðarbær hefur jafnt og þétt komið ábendingunum íbúa, sem berast í gegnum ábendingagátt, áfram til Umhverfis- og orkustofnunar. Umhverfis- og framkvæmdaráð bæjarins bendir á í bókun sinni frá 29. maí síðastliðnum að málið varði loftgæði í bænum og hefur áhrif á lífsgæði íbúa.

„Samkvæmt loftslagsstefnu Hafnarfjarðar er lögð áhersla á að draga úr mengun og stuðla að heilnæmu umhverfi og því mikilvægt að brugðist sé við með markvissum aðgerðum,“ segir þar og að mikilvægt sé að eftirlit sé sterkara og hvetur ráðið ríkisvaldið til þess að skerpa mengunarvarnarlöggjöfina.

Hafnarfjarðarbær fylgir málinu eftir og hvetur Umhverfis- og orkustofnun til að halda þétt um málið.

 

Ábendingagátt