Bjartir dagar framundan í Hafnarfirði

Fréttir

Menningarhátíðin Bjartir dagar hefst í Hafnarfirði á 115 ára afmælisdegi bæjarins á morgun fimmtudaginn 1. júní. Hátíðin fagnar 20 ára afmæli í ár og boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði allan júní.

Hafnfirðingar taka fagnandi á móti sumri

Menningarhátíðin Bjartir dagar hefst í Hafnarfirði á 115 ára afmælisdegi bæjarins á morgun fimmtudaginn 1. júní. Hátíðin fagnar 20 ára afmæli í ár og boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði allan júní. Hátíðin hefst á því að nemendur í þriðja bekk syngja inn sumarið undir stjórn Guðrúnar Árnýjar á Thorsplani kl. 10. Þá hafa leikskólabörn skreytt fyrirtæki, verslanir og stofnanir með list sinni um allan bæ og kl. 17 verður ný sýning um Hafnarfjarðarlögregluna opnuð í Byggðasafni Hafnarfjarðar af lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.

Sumri fagnað með fjölbreyttum hátíðarhöldum

Bjartir dagar er þátttökuhátíð sem byggir á því að stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki, íþróttafélög, tónlistarfólk og einstaklingar taki þátt í að skapa viðburði um allan bæ sem tengjast hátíðinni eða taki þátt í þeim dagskrárliðum sem aðrir skipuleggja. Kraftur og gróska í listalífinu í Hafnarfirði hefur meðal annars endurspeglast í viðburðinum Gakktu í bæinn þegar listamenn, hönnuðir og handverksfólk á svæðinu frá smábátahöfninni að miðbæ Hafnarfjarðar opna vinnustofur sínar á föstudagskvöld og bjóða gesti og gangandi velkomna í heimsókn. Þá verða einhverjar verslanir í miðbænum opnar fram á kvöld og tilvalið að versla einstaka hönnun og list í hjarta Hafnarfjarðar. Ýmsir tónlistarviðburðir skipa stóran sess í dagskrá Bjartra daga í ár líkt og fyrri ár og þá fer einnig mikið fyrir íþróttaviðburðum í heilsubænum Hafnarfirði en 8. júní verður Hafnarfjarðarhlaupið haldið í fyrsta skipti á götum bæjarins og kemst þar með í fámennan hóp götuhlaupa á Íslandi.

Dagskrá Bjartra daga má finna á hfj.is/bjartirdagar

Ábendingagátt