Borðtennis, bogi og dans – Frístundamessa

Fréttir

Borðtennisfélagið, Hrói höttur; Listdansskólinn og Dansfélag Hafnarfjarðar verða á Frístundamessunni. Frístundamessan verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14.

 

Finndu réttu frístundina á Frístundamessunni

Já, börnin okkar leita oft lengi eftir því að finna bestu frístundina – þá frístund sem hentar þeim. Nú fá þau tækifæri til að kynnast mörgum þeirra á einu bretti.

Markmiðið með fyrstu Frístundamessunni í Hafnarfirði er að stytta þeim leið. Frístundamessan verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14.

Fimmtán félög kynna starfsemi sína. Oft þarf ekki mikinn búnað til að geta tekið þátt. Við kynnumst fjórum þeirra í dag.

  • Borðtennisdeild Badmintonfélags Hafnarfjarðar Borðtennis er skemmtileg og hröð íþrótt sem hægt er að stunda sér til ánægju eða með keppni að markmiði. Um 100 manns á öllum aldri æfa borðtennis hjá BH. Upplýsingar um æfingatíma og skráningu eru á badmintonfelag.is. Óska þarf eftir prufuæfingu á bh@bhbadminton.is. Félagið lánar spaða og kúlur og iðkendur þurfa aðeins þægileg íþróttaföt og innanhússkó til að byrja.
  • Bogfimifélagið Hrói Höttur Bogfimi er fjölbreytt íþrótt sem hentar breiðum hópi iðkenda. Hægt er að prófa mismunandi gerðir boga, æfa sér til ánægju eða stefna á þátttöku í mótum og keppnum. Um 90 iðkendur eru hjá Bogfimifélaginu Hróa Hetti. Félagið útvegar byrjendum allan nauðsynlegan búnað. Skráning fer fram á bfhroihottur.is.
  • Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar býður upp á samkvæmisdansa, barnadansa, salsa, bachata og Zumba. Yngstu iðkendurnir eru tveggja til þriggja ára og æfa þeir án endurgjalds fram að jólum. Um 300 nemendur stunda nám hjá félaginu ár hvert. Kennsla hefst 5. september og lýkur með jólaballi og nemendasýningu. Skráning fer fram í Abler eða með tölvupósti á dihdans@simnet.is. Nánari upplýsingar eru á dih.is.
  • Listdansskóli Hafnarfjarðar Listdansskóli Hafnarfjarðar býður upp á fjölbreytt dansnám, meðal annars jazz, commercial, söngleikjadans, ballett, nútímadans og silki. Áhersla er lögð á gott félagslíf og nemendur geta tekið þátt í keppnum, sýningum, viðburðum og æfingaferðum. Um 350 iðkendur eru við skólann, sem vann tvo heimsmeistaratitla á Dance World Cup í Dublin síðastliðið sumar. Upplýsingar eru á listdansskoli.is og listdansskoli@listdansskoli.is.

Já, komdu í messu á laugardaginn!

Ábendingagátt