Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna
Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa. Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. Teymið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Um er að ræða hluta af aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa. Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi.
Hluti af aðgerðum stjórnvalda vegnaofbeldis meðal barna og gegn börnum
Teymið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Það er hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Í styrkveitingu ráðuneytisins til sveitarfélaga í haust var úthlutað tæplega 500 milljónum króna til 15 verkefna um allt land – stærsti styrkurinn eða 240 m.kr. var veittur til uppbyggingar á nýju miðlægu bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldismála barna: Púlsinum.
Í Púlsinum starfar hópur reyndra sérfræðinga sem hefur umfangsmikla reynslu af því að vinna með ungmennum í vanda. Hópnum er ætlað að bregðast við og taka á ofbeldismálum, skýra og auðvelda boðleiðir og tryggja skilvirka samvinnu allra þjónustuveitenda og -kerfa. Með því að koma fyrr að slíkum málum og veita börnum sem beita ofbeldi viðeigandi stuðning fljótt og markvisst eru vonir bundnar við að draga úr líkum á að slík brot endurtaki sig og fækka ofbeldismálum meðal barna.
„Við eigum aldrei að sætta okkur við ofbeldi meðal barna eða gegn börnum. Okkar skylda er að bregðast við af mannúð, ákveðni og ábyrgð, með barnið sjálft í miðju alls sem við gerum. Púlsinn er afar mikilvægur áfangi, því með samstilltu átaki getum við verndað börn betur og dregið úr ofbeldi,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. „Ráðuneytið auglýsti eftir verkefnum frá sveitarfélögum í fyrra í þeim tilgangi. Púlsinn er nú kominn til framkvæmda og fleiri verkefni eru í burðarliðnum og ég trúi og vona svo sannarlega að þau skili okkur árangri í bættri líðan barna,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
„Verkefnið er hluti af nauðsynlegum aðgerðum okkar gegn ofbeldi meðal barna. Markmið Púlsins er að flýta viðbrögðum við ofbeldismálum, skýra boðleiðir og styrkja samvinnu í sameiginlegu utanumhaldi okkar um börn og fjölskyldur. Við vitum að með því að grípa inn í snemma og með markvissum stuðningi er hægt að draga úr endurtekningu brota og fækka slíkum málum,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og formaður stjórnar SSH.
Leitast við að afstýra frekara ofbeldi
Púlsinn hefur aðsetur í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar en starfsfólk teymisins er á ferðinni á milli sveitarfélaganna, eftir því sem aðstæður krefja. Teymið stígur inn í mál sem upp koma, kannar hvort hætta er á frekara ofbeldi og leitar leiða til að greiða úr samskiptavanda. Miðað er að því að afstýra hættu á frekara ofbeldi áður en aðkomu teymisins lýkur. Fylgt er skýru verklagi sem fulltrúar allra sveitarfélaga hafa skrifað undir og sem tryggir meðal annars að mál séu unnin á samræmdan hátt.
Fjölbreyttur og reynslumikill hópur
Andrea Marel, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er teymisstjóri Púlsins en með henni í teyminu eru átta aðrir sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og tungumálakunnáttu. Í hópnum eru meðal annars annar tómstunda- og félagsmálafræðingur, félagsráðgjafar og sálfræðingar. Starfsfólkið hefur starfað innan nokkurra sveitarfélaga og á það umfram annað sameiginlegt að hafa mikla reynslu af störfum með ungu fólki sem hefur sýnt af sér áhættuhegðun og glímir við ýmsar áskoranir í lífinu.
Þjónustuveitendur óska eftir aðkomu teymisins
Skóli, félagsmiðstöð, félags- og barnaverndarþjónusta, lögregla og aðrir sem veita börnum þjónustu geta virkjað Púlsinn. Telji foreldrar eða forsjáraðilar að Púlsinn ætti að koma að máli þeirra barns er fyrsta skrefið að hafa samband við einhvern ofangreindra og óska eftir aðstoð við að tengjast teyminu.
Nánar um Púlsinn
Nánar um aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna
