Einföld og skapandi lausn skilar sýnilegum árangri
Það er margt sem þarf til að halda bænum fallegum – og stundum verða bestu lausnirnar til með skapandi hugsun, frumkvæði og metnaði. Undanfarna daga hefur staðið yfir umfangsmikil hreinsun á göngustígum, hellulögðum svæðum og stéttum við Hamarskotslæk. Margir hafa eflaust tekið eftir breytingunni, því árangurinn lætur svo sannarlega ekki á sér standa.
Einföld skapandi lausn skilar sýnilegum árangri við Lækinn
Það er margt sem þarf til að halda bænum fallegum – og stundum verða bestu lausnirnar til með skapandi hugsun, frumkvæði og miklum metnaði. Undanfarna daga hefur staðið yfir umfangsmikil hreinsun á göngustígum, hellulögðum svæðum og stéttum við Hamarskotslæk. Margir hafa eflaust tekið eftir breytingunni, því árangurinn lætur svo sannarlega ekki á sér standa.
Snjöll lausn sem auðveldar framkvæmd og fyrirkomulag
Á síðustu árum hefur skapast ákveðin viðhaldsþörf m.a. á opnum og grænum svæðum bæjarins. Gróður, mosi og óhreinindi hafa smám saman sest á yfirborð stíga og hellna og kallað á markvissa hreinsun. Nú hefur starfsfólk þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðarbæjar fundið snjalla lausn sem gerir verkið bæði skilvirkara og auðveldara. Með því að útbúa vörubíl með stórum vatnstönkum og öflugri dælu hefur skapast nýr og afar öflugur vinnubúnaður sem gerir starfsmanni kleift að háþrýstiþvo stíga og opin svæði af miklum krafti. Lausnin er einföld, hagkvæm og hefur þegar skilað frábærum árangri.
Snyrtilegur, grænn og aðlaðandi – eitt verkefni í einu
Þetta er gott dæmi um hvernig þekking starfsfólks, frumkvæði og áhugi á nærumhverfinu getur leitt til nýrra leiða sem gera bæinn okkar enn fallegri og notalegri fyrir alla. Við hvetjum íbúa til að líta við við Hamarskotslæk og sjá muninn með eigin augum. Það er ánægjulegt að upplifa hvernig markviss vinna og skapandi hugsun geta blásið nýju lífi í eitt af fallegustu útivistarsvæðum Hafnarfjarðar.
Saman höldum við Hafnarfirði snyrtilegum, grænum og aðlaðandi – eitt verkefni í einu.

