Einstök stemning sem myndast í miðbænum
Síðasta helgi Hjarta Hafnarfjarðar er framundan og þar með lýkur sex vikna tónlistarveislu sem hefur sett líflegan svip á miðbæ Hafnarfjarðar í allt sumar. Áætlað er að hátt í 60.000 gestir hafi sótt hátíðina frá því hún hófst í lok júní og skapað einstaka stemningu á torgum, veitingastöðum og götum bæjarins.
Lokasprettur Hjarta Hafnarfjarðar framundan
Síðasta helgi Hjarta Hafnarfjarðar er framundan og þar með lýkur sex vikna tónlistarveislu sem hefur sett líflegan svip á miðbæ Hafnarfjarðar í allt sumar. Áætlað er að hátt í 60.000 gestir hafi sótt hátíðina frá því hún hófst í lok júní og skapað einstaka stemningu á torgum, veitingastöðum og götum bæjarins.
„Við hefðum varla getað óskað okkur betra sumars,“ segir Páll Eyjólfsson, einn af rekstraraðilum Bæjarbíós og forsprakki Hjarta Hafnarfjarðar. „Það sem gleður okkur kannski mest er að sjá hvernig fólk nýtir miðbæinn. Fólk kemur snemma, fær sér að borða, hittir vini, nýtur viðburða og tónlistar og skapar líf sem smitast um allt svæðið. Þetta er nákvæmlega það sem við vonuðumst til þegar við lögðum af stað.“
Miðbærinn orðinn samkomustaður
Hjarta Hafnarfjarðar hefur á stuttum tíma fest sig í sessi sem einn stærsti sumartónlistarviðburður landsins. Um hverja helgi hafa þúsundir gesta lagt leið sína í miðbæinn þar sem fríir tónleikar, matarvagnar og fjölbreytt dagskrá hafa skapað líf og gleði. Páll segir samstarfið við Hafnarfjarðarbæ, fyrirtæki í miðbænum og fjölmarga aðra aðila skipta sköpum.
„Þetta verður ekki til nema vegna þess að margir leggja hönd á plóg. Við finnum fyrir miklum velvilja og það er ótrúlega gaman að sjá hvað Hafnfirðingar taka vel á móti gestum alls staðar að af landinu.“
Enn ein stór helgi framundan
Þótt fimm frábærar helgar séu að baki er enn nóg eftir. Nú um helgina verður síðasti kafli hátíðarinnar skrifaður með glæsilegri dagskrá þar sem fjölbreyttur hópur tónlistarfólks stígur á svið og líf verður í miðbænum frá fimmtudegi til laugardagskvölds. „Við ætlum að enda þetta með stæl. Við hvetjum bæði Hafnfirðinga og alla sem hafa ekki enn komið í heimsókn að líta við, njóta stemningarinnar og vera með okkur síðustu helgina.“
Dagskráin verður fjölbreytt um helgina. Hamingjustund og Hreimur með PopQuiz. Magnús Kjartan með bekkjasöng og Stuðlabandið ásamt Röggu Gísla og Stebba Hilmars á fimmtudegi. Á föstudegi hamingjustund, Sandra Barilli með partýbingó og Land og synir. Á laugardag verður svo Eva Ruza með partýbingó og celebrity PopQuiz og Nýdönsk um kvöldið.
Hafnarfjarðarbær óskar skipuleggjendum, tónlistarfólki og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til hamingju með glæsilega framkvæmd. Hjarta Hafnarfjarðar hefur enn á ný sýnt hvað gerist þegar öflugt menningarlíf, samvinna og lifandi miðbær fara saman.
Við hlökkum til að sjá sem flesta í miðbæ Hafnarfjarðar um helgina.
