Fáðu verkfæri frá skjánum á fræðslufundinum Horfumst í augu

Fréttir

Unnur Arna Jónsdóttir, eigandi Hugarfrelsis, mun veita öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna og ungmenna á fræðslustundinni Horfumst í augu í Bæjarbíói kl. 17 á þriðjudag.

Horfumst í augu og minna á skjáinn

Unnur Arna Jónsdóttir, eigandi Hugarfrelsis, mun veita öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna og ungmenna á fræðslustundinni Horfumst í augu. Fundurinn verður í Bæjarbíói í Hafnarfirði kl. 17 þann 29. apríl.

Flest gerum við okkur grein fyrir því að skjátími hefur áhrif en fæst hversu skaðleg áhrifin geta verið á heilbrigði og líðan barna okkar.

Við erum þorpið

Fundurinn er hluti fundarraðarinnar Við erum þorpið þar sem málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi er í brennidepli. Fundaröðin er jafnframt hluti af vegferð Hafnarfjarðarbæjar að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.

Auk leiðsagnar Unnar frumsýnir Foreldraráð Hafnarfjarðar áhugavert myndband tengt skjátíma barna. Foreldraráðið setur einnig fram spennandi hugmyndir til að fjölga samverustundum, útiveru og upplifun.

Kór Öldutúnsskóla, undir styrkri stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur, mun flytja lagið Skínum skært og gerast þannig boðberar kærleikans í Hafnarfirði.

Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri forvarna og frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ, sér um stýringu fræðslustundar.

Fundur fyrir foreldra

Fyrir hverja: Foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna á öllum aldri

  • Opnun – Stella Björg
  • Boðberar kærleikans – kór Öldutúnsskóla, undir styrkri stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur, mun flytja lagið Skínum skært og gerast þannig boðberar kærleikans í Hafnarfirði. Hljómborð og mírkrafónn fyrir kórsöng út í sal
  • Snjalltækjanotkun – áhrif, afleiðingar og úrræði. Unnur Arna Jónsdóttir eigandi Hugarfrelsis.
Ábendingagátt