Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Faldbúningur maddömu Rannveigar Sívertsen var afhentur formlega í dag á 272 ára afmælisdegi hennar. Búningurinn, sem unninn er eftir lýsingum úr dánarbúi Rannveigar, verður framvegis til sýnis í Sívertsen-húsinu.
Faldbúningur maddömu Rannveigar Sívertsen var afhentur formlega í dag á 272 ára afmælisdegi hennar. Ákveðið var að ráðast í gerð faldbúnings fyrir tveimur árum síðan, þá á 270 ára stórafmælisdegi Rannveigar. Búningurinn, sem unninn er eftir lýsingum úr dánarbúi Rannveigar, verður framvegis til sýnis í Sívertsen-húsinu.
Annríki – þjóðbúningar og skart hefur síðustu tvö árin unnið að saumum á faldbúningi maddömu Rannveigar Sívertsen. Maddama Rannveig var kona Bjarna riddara Sívertsen stórútgerðarmanns í Hafnarfirði. Annríki fékk styrk frá menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar til að kynna og koma verkefninu af stað fyrir tæpum tveimur árum síðan. Í gegnum þessi tvö ár hefur verkefnið fengið góðan liðsauka tíu einstaklinga til gagnaöflunar og sauma enda um að ræða vandasamt verk sem byggir í grunninn á sögu og lýsingum úr dánarbúi Rannveigar. Allir þessir einstaklingar gáfu vinnu sína í verkefnið og er hér um ómetanlegt framlag að ræða til varðveislu á sögulegum minjum Hafnarfjarðarbæjar. Það eru þau hjónin Ásmundur Kristjánsson, vélvirki og gullsmiður og Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri og kjólameistari sem eiga og reka fyrirtækið Annríki – þjóðbúninga og skart. Fyrirtækið sérhæfir sig í öllu því sem viðkemur íslenska þjóðbúningnum. Saumur á faldbúningi fyrir maddömu Rannveigu er eitt af metnaðarfullum gæluverkum þeirra hjóna. Faldbúningurinn er nú tilbúinn og var formlega afhentur í dag bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar, Haraldi L. Haraldssyni.
„Fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar færi ég ykkur hjónum okkar bestu þakkir fyrir fallega gjöf sem er safninu til sóma. Það er fyrir áhugafólk og velunnara sem ykkur að Byggðasafn Hafnarfjarðarbæjar hefur nú á að skipa nokkuð góðum safnkosti sem gerir því kleift að setja reglulega upp nýjar sýningar og skipta út munum og myndum. Þetta hefur einungis verið hægt vegna þeirra velvildar sem safnið nýtur í samfélaginu. “ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri við afhendinguna.
Faldbúningurinn verður eftirleiðis til sýnis í Sívertsen-húsinu fyrir gesti og gangandi.
Hefur þú áhuga á garðræktun? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Viltu taka þátt í verkefni…
Matjurtagarðar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum íbúum Hafnarfjarðar gegn vægu gjaldi. Hér um að ræða frábært tækifæri fyrir einstaklinga og fjölskyldur…
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli,…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á dögunum sex styrki úr Húsvendarsjóði. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta og námu þeir…
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að lækka gjaldskrár sveitarfélagsins frá og með 1. maí 2024.…
Hver er Ebba Katrín? „Hún er þriggja bræðra systir. Ólst upp í Setbergi í Hafnarfirði, alla mína barnæsku,“ svarar bæjarlistarmaður…
Samfélagslöggur Hafnarfjarðar heimsækja nú 7. bekki í grunnskólum Hafnarfjarðar og veita nemendunum fræðslu um ofbeldi, vopnaburð, einelti og hótanir. Samfélagslöggæsla…
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu…
Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en föstudaginn 17. maí kl. 15.
Gleðilegt sumar kæru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður fagnar sumarkomunni með sumarhátíð í Hafnarfirði. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12 með…