FH-ingar sigruðu Gothia Cup

Fréttir

Það var sannkölluð sigurhelgi fyrir Hafnarfjörð þegar 4. flokkur karla hjá FH stóð uppi sem sigurvegari á alþjóðlega knattspyrnumóti Gothia Cup í Svíþjóð. Liðið átti frábært mót og lauk keppni taplaust. FH vann níu leiki, gerði eitt jafntefli, skoraði alls 53 mörk og fékk aðeins tvö á sig. Eftir sigurinn fögnuðu FH-strákarnir með hinu íslenska víkingaklappi ásamt stuðningsfólki sínu.

Glæsilegur árangur ungra Hafnfirðinga

Það var sannkölluð sigurhelgi fyrir Hafnarfjörð þegar 4. flokkur karla hjá FH stóð uppi sem sigurvegari á alþjóðlega knattspyrnumóti Gothia Cup í Svíþjóð. Liðið átti frábært mót og lauk keppni taplaust. FH vann níu leiki, gerði eitt jafntefli, skoraði alls 53 mörk og fékk aðeins tvö á sig. Í úrslitaleiknum lögðu FH-strákarnir spænska liðið Imperial Future að velli, 1–0, þar sem Víkingur Hrafn Þórhallsson skoraði sigurmarkið. Árangurinn endurspeglar ekki aðeins mikla hæfileika leikmannanna heldur einnig metnað, samheldni og öflugt starf þjálfara, sjálfboðaliða og foreldra sem standa að baki liðinu og öllum liðunum á mótinu. Slíkar stundir verða til fyrir sameiginlegt átak margra og eru mikil hvatning fyrir ungt íþróttafólk. Eftir sigurinn fögnuðu FH-strákarnir með hinu íslenska víkingaklappi ásamt stuðningsfólki sínu – eftirminnileg stund sem vakti athygli og sýndi þann liðsanda og gleði sem einkenndi ferðina.

Innilega til hamingju með glæsilegan árangur

Hafnarfjarðarbær óskar leikmönnum, þjálfurum og öllu FH-samfélaginu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur. FH er eitt af fjölmörgum öflugum íþróttafélögum bæjarins sem vinna ómetanlegt starf fyrir börn og ungmenni og þessi sigur er fallegur vitnisburður um það góða starf sem unnið er á hverjum degi.

Til hamingju, FH – Hafnarfjörður er stoltur af ykkur!

Ljósmyndir: Gothiacup_official 

Ábendingagátt