Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2024 var lagður fram í bæjarráði í dag 10. apríl 2025. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 1.208 milljónum króna á árinu 2024, samanborið við 808 milljónir árið áður.
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2024 var lagður fram í bæjarráði í dag 10. apríl 2025. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 1.208 milljónum króna á árinu 2024, samanborið við 808 milljónir árið áður. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði nam 3.545 milljónum króna. Afgangur af rekstri A hluta nam 117 milljón króna 2024 en var 251 milljón króna árið á undan. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 3.734 milljónum króna og var 975 milljónum yfir áætlun. Veltufé frá rekstri svaraði til 7,6% af heildartekjum en það var 5,6% af heildartekjum árið á undan. Skuldaviðmið samstæðu Hafnarfjarðarbæjar nam 90% í árslok 2024.
,,Grunnrekstur Hafnarfjarðarbæjar gekk mjög vel á síðasta ári þrátt fyrir heldur minni fjölgun íbúa en gert var ráð fyrir og hægari uppbyggingu m.a. vegna hárra vaxta. Fjárhagsstaða bæjarins er auk þess sterk. Veltufé frá rekstri var verulega yfir áætlunum sem styrkir getu sveitarfélagsins til að standa undir framkvæmdum og fjárskuldbindingum. Innviðafjárfestingar voru auknar verulega sem koma til með að skila sér í enn öflugri þjónustu og auknum lífsgæðum fyrir bæjarbúa. Hafnarfjarðarbær nýtur nú góðs af mikilli uppbyggingu íbúða- og atvinnuhúsnæðis á undanförnum árum sem mun styrkja tekjustofna sveitarfélagsins til framtíðar,“ segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri.
Rekstrartekjur af A og B hluta námu 49,3 milljörðum króna á árinu 2024 og jukust um 2 milljarða króna á milli ára. Þar af jukust tekjur vegna útsvars og fasteignaskatta um 2,4 milljarða króna. Í hlutfalli við heildartekjur námu útsvartekjur 51,4% og fasteignaskattar 9,1%. Rekstrargjöld voru 43,9 milljarðar króna og jukust um 1,9 milljarða króna á milli ára. Þar af námu laun og launatengd gjöld 24,1 milljarði króna og jukust um 1,9 milljarða króna á milli ára. Hlutfall launa og launatengdra gjalda sem hlutfall af heildartekjum Hafnarfjarðarbæjar var um 48,9%.
Fjármagnsgjöld voru 2.337 milljónum króna umfram fjármagnstekjur sem er 503 milljónum króna minna en árið áður. Fjármagnskostnaður var um 180 milljónum króna undir áætlun sem skýrist einkum af lægri verðbólgu en gert hafði verið ráð fyrir í áætlun ársins.
Rekstrarniðurstaða A og B-hluta var jákvæð um 1.208 m.kr. sem er um 658 m.kr. undir áætlun. Í því sambandi má nefna að tekjur af sölu byggingaréttar var um 2.027 milljónum króna undir því sem áætlað hafði verið fyrir árið.
Skuldaviðmið Hafnarfjarðarbæjar fór úr 82% í 90% í lok árs og er verulega undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Skuldahlutfall fór úr 129% í 133%.
Fjárfestingar á árinu 2024 námu 8,3 milljörðum króna sem er 17% aukning milli ára. Heildareignir í lok árs námu alls 101,0 milljarði króna og jukust þær um 7,0 milljarða á árinu. Alls námu heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins 65,7 milljörðum króna og jukust um 4,6 milljarða króna. Hjá Hafnarfjaðrarbæ nema lífeyrisskuldbindingar um 27% skulda og skuldbindinga sveitarfélagsins sem er allnokkru hærra hlutfall en hjá nágrannasveitarfélögum.
Eigið fé nam 35,3 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 2,5 milljarða króna á árinu. Eiginfjárhlutfall er 34,9% sem er óbreytt hlutfall frá fyrra ári.
Íbúar Hafnarfjarðar voru 31.525 hinn 1. janúar 2025 sem er fjölgun um 909 íbúa.
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram Sumardaginn fyrsta eins og venjulega. Börnin kepptumst við og luku hlaupinu með glæsibrag.
Unnur Arna Jónsdóttir, eigandi Hugarfrelsis, mun veita öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna…
Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2025. Arngunnur Ýr hefur skapað sér gæfuríkan feril til áratuga. Verk hennar…
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir geymslusvæðið verður kynnt á kynningarfundi þriðjudaginn 13. maí milli klukkan 16:00-17:30 á Norðurhellu 2 í…
Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 27. apríl.
Söngleikurinn Horfnu ævintýrapersónurnar í uppsetningu 3. bekkjar Áslandsskóla fékk frábærar viðtökur á uppskeruhátíð Menningardaga Áslandsskóla fyrir páska. Þessi árlega menningarhátíð…
Nú er að njóta. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru…
Sérstakt horn, sem kallast Réttindahorn og er hilla með bókum sem efla réttindavitund, er nú komið upp á Bókasafni Hafnarfjarðar.…
Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar, hefur verið sæmd heiðursorðu Póllands. Orðan er heiðursviðurkenning fyrir þjónustu við pólska samfélagið og Pólverja…
Allt kapp var lagt á að koma öllum ærslabelgjum heilsubæjarins Hafnarfjarðar í stand fyrir helgina enda skín sólin. Allir fimm…